Fjölskyldugrill Kárastaðarættarinnar
Ég fór í árlegt fjölskyldugrill Kárastaðarættarinnar áðan, það var að vanda haldið hjá Einari frænda og Hugrúnu konu hans sem búa í Kjós. Það þarf nú ekki að taka fram að það var mjög gaman, enda ekki annað hægt þegar besta ætt landsins kemur saman ;-)
Þau eru með lítið folald sem er einsaklega gæft sem ég eyddi miklum tíma hjá og tók margar margar sjálfsmyndir sem komu misvel út, mismunandi hve mikið af mér og hve mikði af folaldinu var á myndinni og svona, en þetta er uppáhaldsmyndin mín. Helst hefði ég viljað taka folaldið með mér heim !

