Grease
Kalli “litli bróðir” átti 3 miða á Grease í Loftkastalanum og var svo yndislegur að bjóða mér með. Sýningin var mjög skemmtileg, þó að hún hafi nú átt lítið með myndina að gera fyrir utan söngvana, söguþráðurinn var einhvern veginn allt annar…
Við sátum á næst aftasta bekk, alveg upp í rjáfri og loftkælingin var engin, svo við sátum þarna saman í svitakófi að reyna að halda meðvitund.
En Grease er alltaf æði, karlmenn sem leika, syngja og dansa eru líka svakalega sexy :D
