Ættarmót

This entry was posted by Linda Rós on Sunday, 28 June, 2009 at

Ég fór á ættarmót á Úlfljótsvatni í gær, móðurætt pabba. Það var ansi fámennt og óskipulagt, en mjög gaman samt. Við vorum 9 úr okkar hluta (ömmu) sem mættum, svo voru kannski svona mest 20 aðrir þarna. Suma hafði maður hitt áður, aðra mundi ég allavega ekkert eftir.

Við sátum í blíðskaparveðri og spjölluðum, grilluðum svo um kvöldið. Ég fór svo heim stuttu seinna, lítið um að vera og ég var á bílnum hennar mömmu og þurfti að vera að skutla starfsfólki.


Leave a Reply