Að vera einhleypur
Maður hefur nú stundum heyrt í gegnum árin stelpur vera að dæsa yfir að vera einhleypar og að markaðurinn sé nú ekki góður. Ég skráði mig í einhverri rælni á einkamal.is (djö er það annars hrikalega leiðinleg síða með nánast engum fítusum) um daginn og svo er eitthvað sem heitir Zoosk á facebook. Eftir ekki mjög ítarlega skoðun get ég nú alveg verið sammála.
Enda ætla ég bara að pipra og vinna í lottóinu á lífsleiðinni svo þegar ég hrekk upp af að það finnist góð heimili fyrir kettina mína 99 og hundana mína 99 og öll hin dýrin mín 99 (mér finnst sko viss geðveiki að fara yfir hundraðið) :D
Veit lika að mamma mun verða svo ánægð að hafa mig á heimilinu í ellinni, en hún segist ekki ætla að taka mig með á elliheimilið…
