Helgi frændi
29.6.2009
Hótel Valhöll, Þingvöllum
Föstudaginn 3.júlí bjóðum við til léttrar veislu hér á Valhöll.
Tilefnið er að nýir rekstraraðilar hafa tekið við og hafa hug á að hefja Hótel Valhöll til vegs og virðingar á ný .
Hótel Valhöll á sér langa og merka sögu,enda staðsett á einum af okkar helgasta og merkasta stað, í Þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Margar merkar veislur hafa verið hér í gegnum tíðina og hér á árum áður var heimsókn á Valhöll fastur liður í lífi íslendinga.
Okkur langar til að fagna því að vera hérna í þessari náttúruperlu á þessum yndislega stað og í þessu gamla sjarmerandi húsi sem Valhöll er.
Bjóðum alla velkomna og þiggja léttar veitingar að hætti Valhallar ,milli kl:19.00 – 21:00 þar sem boðið verður upp á fingurmat m.a.smakk á silung , smá bakkelsi, flatkökur o.fl. og drykkur með.
Hápunktur kvöldsins verður síðan þegar
Helgi Björns stígur á svið og syngur gamlar og hugljúfar íslenskar dægurperlur við undirleik þeirra Kjartans Vald., hljómborðsleikara og Stefáns Más Magnússonar , gítarleikara, þetta verður upphafið að fleiri tónleikum og öðrum uppákomum.
Með von um að sjá sem flesta að njóta með okkur
f.h. Hótel Valhallar
Úlfar I. Þórðarson
Sjá á vefsíðu Hótel Valhallar.
Ég verð á svæðinu ;-)

Æi, litla skinnið….það var gott að þið komuð þarna akkúrat á þessum tíma :-)