Fjallganga#4 Ármannsfell
Ármannsfell
5. júlí 2009
Göngufélagi: Ronja
Um: Þetta er ekki mjög erfið ganga og mjög skemmtileg, frábært útsýni.
Síðan ég var bara krakki hefur mig langað til að ganga upp á Ármannsfell en aldrei látið verða af því. Alltaf haldið að þetta væri of erfitt, að ég myndi ekkert komast þarna og alltaf verið vandamál að fá einhvern með og svo framvegis.
Nýja Lindan hætti þessu bara og gekk upp á fjallið ein í gær (eða tja með Ronju). Fór upp mjög greiðfæra og skemmtilega leið en vildi finna aðra niður og lenti í smá vanda, valdi mjög svo ógreiðfæra leið og var ansi hrædd um útlimi á tímabili en það gerir gönguna bara eftirminnanlegri.
Annars held ég að í svona fjallgöngum sé nú sniðugra að hafa einhvern með sér en betra að fara einn en ekki !
Ármannsfell:



frábært hjá þér! viltu koma með á Esjuna klukkan hálf sjö í kvöld (mánudag :))
Takk :-)
Það hefði verið gaman en ég er að fara í bíó á My Sister’s Keeper í kvöld.
Góða skemmtun :) Kemur bara með næst :)
Dugleg!!!
mátt vera virkilega stolt af þér skvísa :)
Glæsilegt :)