Hláturjóga í Viðey
Við Anna frænka fórum í hláturjóga í Viðey í gær, það var mjög fínt. Örugglega mjög skemmtilegt að stunda þetta, að læra að losa allar hömlur og vera bara eins og fífl :-)
Þriðjudagsganga í Viðey 21. júlí 2009
Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari
Þriðjudaginn 21.júlí mun Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari leiða gesti þriðjudagsgöngunnar í Viðey. Ásta hefur að undanförnu vakið athygli fyrir námskeið í hláturjóga sem eiga vaxandi vinsældum að fagna. Í þriðjudagsgöngunni verður gengið á vit fallegrar náttúru Viðeyjar og á áningarstöðum gerðar hláturjógaæfingar. Þetta ætti að geta orðið stórskemmtileg og hressandi ferð fyrir alla fjölskylduna enda fátt betra en að njóta íslenskrar náttúru í góðu veðri, -skellihlæjandi.
Siglt er frá Skarfabakka kl. 19:15 og er miðað við að gangan taki um tvær klukkustundir. Gjald í ferjuna kr.1000.- fyrir fullorðna, kr.500.- fyrir 6-18 ára og frítt fyrir börn undir 6 ára aldri.
Nánari upplýsingar um áætlun og verð má finna á www.elding.is og www.videy.com
Leiðsögnin og námskeiðið eru ókeypis og öllum heimil og fá allir þátttakendur gefinn Kristal frá Ölgerðinni.
Ég ætla svo að fara aftur í Viðey í sumar og labba alla eyjuna :-)

