Lindin á Laugarvatni
Ég fór í fyrsta skipti á Lindina á Laugarvatni í gær, ótrúlegt en satt að hafa ekki gert það áður. Ég get nú ekki sagt að ég hafi verið hrifin, mér fannst maturinn ekkert sérstakur, sérstaklega miðað við verð (sem betur fer eiginlega var ég nýbúin að borða áður en ég fór), þjónustan léleg (t.d var bara hægt að lesa matseðilinn af einhverjum spegli en ekki hægt að lesa við borðið) og baðherbergið með flóðlýsingunni var ekki að heilla mig.
Þetta var samt gott kvöld, fór með 3 snarklikkuðum starfsmönnum Þjóðgarðsins, hefði viljað vera með myndavél til að taka myndir og videó af kvöldinu !
