Ronja enn ofvirk
Hún Ronja mín er enn rosalega ofvirk, ef hún sleppur út þá er algert pain að reyna að ná henni. Hún þýtur á eftir fuglum, hestum og rollum eins og enginn sé morgundagurinn. Ég get farið með hana í 6 tíma göngutúr án þess að hún þreytist að ráði.
Hún fór í pössun á laugardaginn og yfir nóttina því við mamma fórum í brúðkaup, sem byrjaði svo snemma og ég vissi ekki hvenær við myndum koma heim. Sú sem passaði hana sagðist ekki hafa séð ofvirkari hund.
Ég held að draumaeigandi hennar væri manneskja sem hlypi svona 10 km á dag með hana. Göngutúrarnir sem ég fer með hana í eru yfirleitt svona 1-1,5 klst, ég held ég geti alveg fullyrt að orka hennar minnki ekki neitt við þessa göngutúra.
