Þyngd
Af einhverjum ástæðum er ég búin að vera að léttast dálítið síðustu vikur, ég hef alltaf verið frekar lítil matmanneskja og alltaf verið að vonast eftir að geta tekið bara 1 litla töflu á morgnanna og þurfa ekki að borða það sem eftir er dagsins ;-) Stundum tek ég líka skorpur þar sem mér finnst matur æði og ét yfir mig. Skýringin gæti kannski verið að það er sjaldnar eldað hérna og sjaldnar étið junk og svona en þegar ég bjó í bænum. En allavega þá segir vigtin að ég sé 53,5 kíló. Þegar ég var sem þyngst, sem var sennilega fyrir um tæpum 2 árum þá var ég 10 kílóum þyngri, hætti svo að borða nammi og léttist um alveg 6-7 kíló. Ég hef ekki verið svona létt síðan rétt eftir tvítugt. Það fyndna samt að ég sé engan mun á mér, nema hvað fötin virðast vera að stækka. Enda hef ég engan svona þyngdarradar á mér, fólk þarf að fitna/grennast mjög mikið til að ég taki eftir því.
