Skondin kisa
Kettlingarnir sluppu inn um daginn án þess að ég tæki eftir og þeir fundu greinilega matinn hennar Ronju sem er geymdur í plastboxi, Börkur var greinilega svo gráðugur að hann stakk hausnum ofan í gatið á lokinu og festist ! Hann var ekkert að kippa sér upp við þetta, hafði allavega hlaupið upp tröppurnar svona og var alveg stilltur þegar ég var að taka þetta af honum.


