Gestabók

Hæ hæ, hver ert þú? Mér finnst gaman að vita hverjir eru að lesa þetta hjá mér :-) (ég “lími” þetta hérna uppi alltaf reglulega)
Nýjar færslur birtast hérna fyrir neðan.

This entry was posted in Almennt, Ólæst. Bookmark the permalink.

50 Responses to Gestabók

  1. kolla says:

    hoy.. ég er hérna af því að það er svo gaman og gott fyrir sálartetrið að lesa um svona duglega stelpu eins og þig :)

  2. Daníel says:

    Sæl Linda,

    ég les þig í gegnum RSS, svo ég kíkti ekkert alltaf inn á sjálfa síðuna, en fylgist spenntur með hvað er að gerast hjá þér :-)

  3. Bára says:

    Hæ Linda,
    Ég les bloggið þitt af því að ég hef gaman að heyra af áhugaverðum viðfangsefnum þínum. Gangi þér áfram vel!

  4. Þórey Ósk says:

    Hæhæ, ég heiti Þórey Ósk ;)

    Mér finnst frábært að lesa reynslusögurnar þínar. Þú ert snilldarpenni :)

    knús í krús

  5. Berglind says:

    ég er hérna öðru hvoru :)

  6. edda says:

    Mér finnst gaman að lesa um hvað þú ert að gera og hvað þú ert búin að vera dugleg að rækta sjálfa þig undanfarið

  7. Inga! says:

    Hæ, ég heiti Inga og ég vil endilega hitta þig!

  8. Linda Rós says:

    Takk öll :-)

    Já Inga verðum að fara að hittast ! Finna föt á mig OG finna 3. aðilann í snúsnú fyrst að Anna er farin af landi brott !

  9. Dagný Ásta says:

    hæ :)

  10. Heiða says:

    Hæ, ég heiti Heiða :) Kíki mjög reglulega hingað inn.

  11. Melafrúin says:

    hæ !
    ég kíki reglulega hingað :)
    maður kíkir alltaf reglulega á góða og skemmtilega bloggara :)

  12. sigga dóra says:

    hæ, ég heiti sigga dóra og var með þér í hr, þú manst eflaust ekki eftir mér :). álpaðist inn á síðuna þína gegnum rss-ið hjá sigrúnu þöll og dáist að dugnaði þínum.

    kveðja, sd.

  13. Dua says:

    Hey ég heitir Dua.. eða eitthvað svoleiðis! Og mér finnst frábært hvað þú stendur þig vel!!

    Kv frá Dautchland

  14. Guðrún says:

    Hæ frænka!
    Ég kíki hér inn regluglega og fylgist með þér og hvað þú ert dugleg að vinna í þínum málum! :-)

  15. Linda Rós says:

    Takk kærlega fyrir þetta og öll fallegu orðin :-)

    Vissi af öllum nema Siggu Dóru, ég man því miður ekki eftir þér (enda held ég að ég gæti nafngreint svona 20 kannski úr skólanum ;-) Alltaf gaman að vita af nýjum lesendum :D

  16. Inga Hrund says:

    Hæ, ég held að ég sé að koma hingað í fyrsta skipti eftir að þú settir síðuna upp aftur. Mér finnst þú vera mjög opin um þín vandamál og það er gaman að lesa hvað nýja Linda er að gera :)

  17. Ég heiti Gyða og ég er sveppafræðingur.
    Sá fyrirsögnina góða hirðinn þegar ég var að lesa um hlaup Sigrúnar Þallar og smellti.
    Í hvert skipti sem við komum til Reykjavíkur förum við í góða hirðinn og kaupum þær bækur sem okkur líst á og við eigum ekki.
    Svo gefur maður þeim bara bækurnar aftur þegar þær fara að verða til óþurftar.
    Gleðilegt haust.

  18. Helga says:

    Sæl :)

    Helga heiti ég og fann þig vafrandi á netinu, hef gaman af því sem þú setur hérna inn. Er sjálf bi-polar og félagsfælinn en er að reyna að vinna í því :)

  19. Linda Rós says:

    Takk öll sömul, gaman að heyra frá nýjum :-)

  20. Óli Una says:

    Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir notalegar stundir á árinu.

  21. Linda Rós says:

    Sömuleiðis elsku Óli :*

  22. Lísa Gestsdóttir says:

    Hæ Linda Rós

    Ég var að lesa um bakverkina þína og ómægod…það er ótrúlegt hvað þetta heilbrigðiskerfi á lítil svör við svona einkennum. Ég stend í þessum sporum…get ekki nema í litla stund staðið, setið eða legið og er endalaust að leita einhverra leiða sem virka. Btw…ertu búin að fara í aðgerðina?
    Kveðja
    Lísa

  23. Linda Rós says:

    Hæ Lísa

    Leiðinlegt að heyra, þetta er ömurlegt ástand ! Ég fer í aðgerðina í enda febrúar myndi ég halda. Vildi að ég hefði einhverjar töfralausnir fyrir þig. Annars sagði þessi læknir að það besta sem maður gæti gert væri að fara í göngutúra, ef maður getur varla labbað þá fara bara stutt en oftar.

    Annars hefur Björgvin Óskarsson læknir bjargað mér stundum í gegnum tíðina með verkjameðferð (sprautur og nálastungur) en það virkaði ekki síðast fyrir mig. Ég borgaði 6900 fyrir hvern tíma hjá honum fyrir áramót og ég var með afsláttarkort svo það er svínslega dýrt að fara til hans.

    Kveðja,
    Linda Rós

  24. Óli says:

    Takk fyrir góða síðu… virkilega áhugaverð lesning. Gangi þér sem allra best með allt þitt í komandi framtíð. ;)

  25. Linda Rós says:

    Takk Óli minn :-)

  26. Guðrún Guðbjörnsdóttir says:

    Þú ert bara alveg æðislega dugleg.Gaman að lesa ferðasöguna og samtölin hjá Lindunum.

  27. Sigurgeir says:

    kíki reglulega til að sjá hvernig þér gengur. Gaman að fylgjast með góðu fólki.

  28. Kolla tjörva says:

    ég er hér ;) ánægð með að síðan er komin upp aftur :)
    Knús á þig krúttið mitt
    kolla x-HR-ingur

  29. Linda Rós says:

    Þú ert yndisleg Kolla, knús tilbaka :-)

  30. Ella Bára says:

    Hæ…skömm að segja frá því en það er allt of langt síðan ég hef farið hérna inn…..en núna ætla ég að lesa niður síðuna og sjá hverju ég hef mist af :-) Knús á þig sæta og duglega frænka :-)

  31. Kristbjörg Helga says:

    Hæhæ :)
    Ég er nú ekki dugleg að kíkja á svona bloggsíður en ég kíki öðru hvoru á þína og skoða það sem þú ert að skrifa :)

  32. Linda Rós says:

    Gaman að vita af ykkur mæðgur :*

  33. Hrefna says:

    Hæ ég þekki þig ekki neitt en rakst á síðuna þína þegar ég var að leyta að upplýsingum um kvíða og félagsfælni á netinu. Finnst þú agalega dugleg :)

  34. Linda Rós says:

    Takk Hrefna :-) Fallega gert af þér að kvitta :-)

  35. Silla says:

    Sæl Linda Rós, ég rambaði á síðuna þína gegnum síðu barbietec. Þú ert svo opin og einlæg manneskja. Svo ertu dýravinur eins og ég. Mig dreymir um að eignast cavalier hund einhvern tíma…..gaman væri að fá blogg um samskipti ykkar tveggja líka :)
    Gangi þér allt í haginn

  36. Linda Rós says:

    Takk kærlega Silla :-) Cavalier hundar eru æðislegir, helsti gallinn er hvað þeir fara svakalega úr hárum. Ég var duglegri að blogga um samskipti okkar þegar hún var yngri en núna er þetta eiginlega allt það sama en ég skal hafa bakvið eyrað að skella inn færslum um okkur :-)

  37. Sævar says:

    Sæl Linda. Ég rakst á viðtal við þig á bleikt.is. Langaði bara að segja þér að mér finnst þetta frábært hjá þér. Ég hef sjálfur oft fundið fyrir depurð og jafnvel þunglyndi og kvíða. Að vísu misjafnlega mikið. Hef samt aldrei íhugað sjálfsvíg. En ég er algjörlega sammála þér með líkamsræktina. Sjálfur hef ég verið mjög duglegur síðustu 2 árin. En ég sé að ég þarf að auka loftfirtu þjálfunina…..það er alveg rétt sem þú segir um hana. Þegar ég hugsa til baka þá líður mér lang best þegar ég hef tekið vel á í stuttan tíma. Ég er sjálfur að reyna að auka meðvitun mína um mínar hugsanir og það gefur mér mikið að lesa um þessa HAM meðferð, hef ekki heyrt um hana áður. Meir að segja núna þegar ég skrifa þér þetta þá kemur upp sú hugsun hvort að það sé ekki asnalegt af mér að skrifa ókunnugri konu þetta. En því meira sem ég veltu þessu fyrir mér þá skaðar það engann að skrifa þér þessar línur. Haltu áfram á þessari braut! frábært hjá þér!

    kær kveðja

  38. Ólöf Kristín says:

    Sæl Linda :)
    Ég var að lesa grein um þig á bleikt.is og eina semég get sagt er VÁ….
    Þú ert að standa þig frábærlega vel og ég óska þér alls hins besta í frammtíðini :)
    Þú ert svo sannarlega manneskja sem getur hjálpað öðrum og gott hjá þér að takast svona á við hlutina þótt það taki mjög á þig. Þú ert flott kona og maður á pottþétt eftir að lesa meira um þig bæði hér á síðunni þinni og i umfjöllunum þar sem að þú ert að standa þig eins og hetja ;)
    Brostu framan í heiminn..þá mun heimurinn brosa framan í þig :D
    Kveðja Ólöf K :D

  39. Sæl og blessuð.
    Mér finnst forvitnilegt hvað þú ert vel af guði gerð og mér fannst merkilegt að les um loftfirrtu æfingarnar og hvað þú ert dugleg að fara í gegnum slíkt líf sem hefur þjakað þig.
    Það er þessi dæmalausa fullkomnunarárátta sem er eins og fangelsi og gefur manni eiginlega ekki nægjanlega slökun og hæfilegt kæruleysi og svigrúm fyrir sálina, um að þú sért ekki að skaða neinn og sért ekki að svíkja þig né aðra.
    Gangi þér vel
    kv. B. M.

  40. Sigrún says:

    Hæ hæ
    Ég er hér því ég sá grein um þig í blaðinu í morgun og á Bleikt.is. Langaði að forvitnast meira um þessa hugrökku og duglegu konu sem er að átta sig á að lífið er dásamlegt og enginn gerir það dásamlegt fyrir okkur nema við sjálf. Sá líka að þú átt Cavalier eins og ég en ég á 1 árs 3 litann rakka sem heitir Tinni :) Gangi þér allt í haginn og haltu áfram að lifa lífinu til fulls !! Go girl!
    Kær Kv. Sigrún

  41. Brynja Friðþórsdóttir says:

    Frá bærar greinR HJ´þér.Vildi að það væri boðið upp á hugræna atserlisfræðði í Vestmannaeyjum.

  42. Linda Rós says:

    Sævar: Takk kærlega fyrir að skrifa þetta, alls ekki asnalegt að skrifa ókunnugri konu þetta, því hún kann virkilega að meta það. :-) Ég mæli hiklaust með að þú kynnir þér HAM og árvekni. Gangi þér innilega vel. :-)
    —-
    Takk kærlega öll fyrir hlýleg og falleg orð. Kann virkilega vel að meta að þið gáfuð ykkur tíma til að skrifa þetta. :-) Ég brosi út að eyrum.
    —-
    Það hafa alveg nokkrir frá Vestmannaeyjum haft samband við mig sem hafa talað um að það vanti að það sé boðið upp á hugræna atferlismeðferð þar. Það væri spurning hvort það væri ekki hægt að athuga með að finna eitthvað út úr því.

  43. Á öxlinni á mér, situr lítill búki.. með bleik horn.. og gulan hala… og hvíslar í eyrun á mér… Ef þessi stelpa, sem síðuna á.. vissi.. bara vissi.. hversu stutt verður í brosið, gleðina og hjartað hennar fer að taka meira og meira pláss.. vegna þrýstings hamingjunnar… úff… úff.. fyrr en hana grunar….
    Knús á þig mín kæra, og sjáumst á morgun ;O)

  44. Ella Bára says:

    Ég fer hér inn á hverjum degi. Það er svo gaman að fylgjast með. Það er mannbætandi að lesa bloggið þitt elsku frænka….risaknús á þig :-)

  45. víðir says:

    Ég lít mjög reglulega hér inn og hef gert í nokkra mánuði.

  46. Elísabet says:

    Sæl Linda Rós 4.0 :)
    Ég las viðtalið við þig í apríl og kíkti þá inn á síðuna þína. Sem betur fer setti ég hana í bookmarks :) Ég er búin að vera að hugsa mikið til þín síðustu vikur.
    Sjálf barðist ég við þunglyndi og kvíða fyrir nokkrum árum en með aðstoð HAM þá komst ég burt frá því. Er núna að hjálpa unnustanum í gegnum það sama.
    Þú veitir mér mikinn innblástur. Takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með. Þú ert hrikalega dugleg :)

  47. Elísabet says:

    …3.0 átti þetta nú að vera. Maður á ekki að vera að flýta sér :)

  48. Helga says:

    Hæ Linda Rós!

    Ég var að skrá mig sem notandi á síðunni þinni. Fannst það pínu skrítið þar sem ég þekki þig ekkert persónulega og hikaði því svolítið við það.
    En ég hef fylgst með blogginu þínu af og til lengi, í nokkur ár held ég! Fann það fyrst þegar ég gúgglaði félagsfælni einhvern tímann – ég þekki sjálf margt af því sem þú ert að ganga í gegnum. Tek undir með Elísabetu hér að ofan, þú veitir mér oft mikinn innblástur :)
    Bestu kveðjur.

  49. Rúnar says:

    var að sjá í fyrsta skiftið,gaman að lesa pistlana þína,Einn í sömu sporum.

  50. Berglind Rós says:

    Sá grein frá þér á bleikt.is og vafraði hingað. Flott blogg hjá þér og þú ert virkilega dugleg í þínum málum. Finn svo margt líkt með okkur., meirasegja nöfnin okkar eru lík ;)
    Hef sjálf átt við þunglyndi og kvíða frá því ég var mjög ung.. man ekki eftir mér öðruvísi en með kvíðahnút í maganum útaf einhverju sem myndi gerast. Það er sem betur fer ekki alltaf svona núna.
    kveðja Berglind Rós Helgadóttir

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>