Framtíðarstarf
Maður er nú alltaf að hugsa um framtíðina, þó að bakið og geðið komist í fínt lag þá verð ég alltaf í áhættuhópi og þarf eitthvað starf sem er gott fyrir bak og geð og eitthvað sem er gefandi og ekki með of mikið af tíma sem þarf að drepa… ef ég bara vissi hvaða starf það væri.
Einn stakk upp á kennslu, ég held það sé ekkert endilega svo vitlaus hugmynd, fjarkennsla og að kenna eldra fólki á tölvur og svona, gæti hentað mér vel. Full stofa af uppreisnargjörnum unglingum væri kannski ekki alveg málið samt…
Er annars opin fyrir uppástungum ;-)
Ætli ég geti fengið einhvern staðar borgað fyrir að klappa og horfa á dýr 8 tíma á dag ?

Já er ekki alltaf þörf á fjarkennslukennurum ??
Var að skoða um daginn hvað kostar að fara á námskeið í einhverju tölvutengdu og fékk sjokk og var fljót að taka þá ákvörðun að vera bara ekkert að spá í að læra neitt á tölvu….fikta bara áfram í því sem ég er búin að vera að fikta í og sleppa því sem ég ekki kann…..allavega ekki borga hönd og fótlegg til að læra það heheh….
Annars er margt sem mann langar að læra en er ekki endilega kennt ….sem viðkemur tölvum.
Þegar ég var í FÁ þá var ekki einusinni byrjað að kenna neitt sem viðkom nettenginu…..nei bara forritun og einhver tölvuvinnsla (námstengt eitthvað)….svo ég lærið ekki á tölvu í rauninn fyrr en ég fór að vinna í póstinum og þurfti að skrá pakka og bréf.
Og lærið ekki á neitt á netinu fyrr en 2006 því ég var haldin tölvufælni og tæknikvíða og nethræðslu.
En núna er ég alveg til í að læra eitthvað sem ég get nýtt mér :) en vá það kostar :o