Hestarnir
Það var farið að detta undan hestunum svo Tóti kom í gær og fór yfir allt saman, hestana okkar og hestana hennar Vilborgar. Hann ætlaði upphaflega að koma á sunnudeginum og ég var búin að setja alla hestana inn í hesthús sem var vesen því þeir voru sloppnir úr tveimur girðingum (tveir af hestunum eru snillingar í að slíta girðingarnar), lagaði girðingarnar, fór og náði í hestana hennar Vilborgar og setti þá líka inn í hesthús, svo leið og beið og enginn Tóti kom. Hestarnir voru svo auðvitað voða stilltir í girðingunni þar til í gær þá sluppu þeir aftur út svo ég fór í gegnum alveg sama prógrammið og á sunnudaginn… en ég er svo mikil sveitastelpa í mér að þetta var bara fínt :D
En nú fer að verða síðasti séns að koma á hestbak ef einhverjir vilja koma, það eru alveg nokkrir búnir að koma í sumar (Ívar, Hafþór, Kristbjörg Helga, Hlynur, Bjössi, Kolbeinn, Ingvi, Ingvi, Brynhildur, Telma og vinkona, fólk sem mamma þekkir… held þá sé allt upptalið)
