Veðrið
Úff hvað þetta veður fer í skapið á mér, maður nennir lítið út í göngutúra eða á hestbak í svona veðri. Mér finnst allt í lagi að vera mikið úti í rigningu en þetta rok sem er alltaf er ekki góð blanda með rigningunni. Svo maður verður einhvern veginn latari og þyngri og æj þarf að rífa mig upp úr þessu.
Aumingja Ronja greyið er ekki sátt, hana langar svo út, í sumar var hún rosalega mikið úti í bandi að dunda sér bara. Hún biður um að fara út, ég opna, hún lítur út og bakkar inn aftur og horfir svo á mig með þessum augum “af hverju ertu að hafa svona vont veður”. Svo er hún mikið æstari inni þegar hún kemst ekki mikið út.
Annars var ég að heyra um hund sem hefur verið greindur ofvirkur með athyglisbrest af dýralækni… ég er viss um að hún Ronja mín myndi fá þessa greiningu líka ;-)
