Bíóferð#8 Up!
Við Inga fórum í Kringluna að finna föt á mig sem gekk alveg ágætlega og enduðum svo daginn með að fara á Up! í 3D og með ensku tali. Myndin var allt öðruvísi en ég bjóst við, var eiginlega meira svona dramaástarsaga en fyndin barnamynd. En hún var æðisleg og ég mæli pottþétt með henni. Fannst skondið að við hliðina á okkur sátu 3 rosa gæjar, konu- og barnlausir á sýningunni allavega ;-)
Fötin sem við fundum var langerma kjóll og kápa í Oasis, keypti reyndar hvorugt í ferðinni en það verður eflaust gert á næstu dögum, þarf t.d að velja lit á kápuna, til grá og svört.


Rosaflott föt….líst vel á þetta…
Mér finnst svona “barna” teiknimyndir yfirleitt rosalega skemmtilegar.Ég á eftir að sjá þessa. En við sjáumst svo í bíó á sunnudaginn :-) :-)
hva? keypir þú þá engar gallabuxur? :p
suss ekki segja þetta svo hún heyri !!!