Dýralæknaferð
Ég fór með Ronju til dýralæknis í dag í árlega sprautu og ormahreinsunartöflu. Ronja var náttúrulega frekar ofvirk og óhlýðin á dýralæknastofunni, eins og hún er alltaf á stöðum utan heimilisins og í kringum fólk/dýr/hluti sem hreyfast ofl. Dýralæknirinn spurði hvort ég vildi setja hana á lyf til að róa hana niður, skilst það sé nokkurs konar hunda rítalín. Ég tók töflurnar en ég hef nú ekki enn kunnað við að gefa Ronju þær… Tók mig tíma að komast á það stig að klæða hund í föt (eitthvað sem ég hélt ég myndi aldrei gera) og þarf greinilega tíma til að komast á það stig að fara að gefa hundi geðlyf.
Hún er alveg róleg í kringum þá sem hún hittir oftast og hérna heima við, en um leið og hún er komin út eða komnir gestir þá er athyglin alveg farin og hún vill bara hlaupa á eftir öllu. Ég hef marg reynt að kenna henni að labba við hliðina á mér, það gengur innandyra ef engin truflun er í smá tíma en ekki séns úti. Ef hún sleppur út þá er hún bara farin, eltir rollur, hesta og fugla til skiptir og ekki séns að hún hlýði manni.
Ég lifi í voninni að þetta eldist af henni, en hún er orðin 17 mánaða og varla hægt að kalla þetta hvolpalæti ennþá.
