Hárgreiðslustofuferð
Ég lét mig hafa það að fara veik í bæinn til að komast í litun og klippingu, lét setja í mig sama lit og síðast, mokka. Ég er svakalega ánægð með þennan lit, verst að ég þarf þá að fara oftar en ég ætla að láta á þetta reyna í smá tíma. Ég lét líða 2 mánuði á milli núna og það var komin smá rót.
Ég lét hana setja á mig topp, bara svona til að prufa og úff stór mistök, geri það ekki aftur. Er með of mikið af sveipum í hárinu til að það gangi upp. En ég greiði hann bara til hliðar í þennan fína hliðartopp ;-)

já ég veit dálítið sein að kommenta.. en það er bara svona.. Sko ég er með of mikið af seipum fyrir topp en ég læt mig samt hafa það..því það er til rosa sniðugt dót sem heitir sléttujárn ;)
Já ég nenni ekki svoleiðis veseni ;-)