Fatastærðir
Ég er komin niður fyrir fatastærð 8/34 í buxum og pilsum og hvað gera menn þá ?! Mér finnst ég alltaf vera að sjá algerar horrenglur út um allt en er ekki að fatta hvar þær versla fötin sín.
Spurning um að fara að ganga bara nakin eða í samfestingum (en þeir eru reyndar örugglega ekki til í svona litlum stærðum).
Inga vinkona sagði mér að fara bara að éta kökur…
Annars er ég að spá í að fara að fjárfesta í mínum fyrstu gallabuxum í ca 17 ár eða svo. Mér finnst helsti gallinn við þær að mér finnst þær ekkert voðalega þægilegar og sama hve horaður maður er, þær búa alltaf til bumbur ;-) En aftur á móti gera þær rassinn og lærin flott :D
Nýja Lindan sem er að reyna að vera aðeins flottar tilhöfð ;-)
