Shalimar
Ég fór út að borða í gær á stað sem heitir Shalimar (indverskt/pakistanskt) og er í Austurstrætinu, ég hafði aldrei heyrt um þennan stað en hann hefur víst verið þarna í dágóðan tíma. Maturinn var mjög góður, ég fékk mér Murgh Madras Curry (Kjúklingur í Madras-karrý kryddsósu með rjóma og kóriander) og hvítlauks nanbrauð. Mæli hiklaust með þessum stað. Ef ljósin væru aðeins dimmuð og ekki alveg jafn þröngt á milli borða þá myndi hann vera enn betri.
Ég var að hitta strák sem ég hafði bara spjallað við á msn og hélt ég myndi fæ vægt hjartaáfall yfir daginn af stressi, en ég lifði af, augljóslega ;-) Skil ekki hvernig fólk getur stundað blind date hægri vinstri, ég yrði að fá ávísað róandi töflum allavega ! ;-)

frábært hjá þér að láta bara vaða :) vonandi var gaman ;)