Salsa taka 2
Ég fór aftur á salsa kynningarkvöld, núna á Thorvaldsen. Mætti núna með strák sem hefur verið í þessu í 2 ár, munar rosalega að hafa einhvern sem maður þekkir og líður vel með til að dansa við, tala nú ekki um ef hann veit hvað hann er að gera. Ég var svo bara að horfa á, þá kom einhver kona að og fór að spjalla við mig og spjölluðum við örugglega saman í rúman klukkutíma. Svo fór hún og þá fór ég fljótlega líka.
Mér fannst kvöldið æðislegt og var ekkert í einhverri félagsfælnismatröð eins og um daginn, fann fyrir voða litlum óþægindum. Ég stóð mig bara mjög vel að eigin mati, steig aldrei á tærnar á Óla !
Hitti loksins Elsu, gaman að hafa hitt þig loksins ;-)

:-)
Gaman að sjá þig skvís, vonandi kemurðu svo bara sem oftast :)