Salsa #3
Ég mætti aftur í Salsa á mánudaginn síðasta (en það eru Salsakvöld 2 í mánuði á Sólon og 2 í mánuði á Thorvaldsen, alltaf byrjendakennsla fyrst, sem er ókeypis og opin fyrir alla!), er búin að mæta á 3 Salsakvöld i röð ! Fyrsta með Ingu og næstu tvö með Óla.
Mér finnst þetta æði þó mér finnist hörmulegt að kunna þetta ekki fullkomlega (geðveikin sko, ég á náttúrulega að kunna og geta allt). Er að taka spor í sturtunni stundum og svona, ég meina hvað annað á maður að gera þegar maður er með djúpnæringu í hárinu í 5 mínútur ?!
Ég ætla pottþétt að fara á námskeið þegar ég get, það þarf ekki að mæta með félaga en þið þekkjið mig, myndi helst vilja gera það. Annars var verið að benda mér á Háskóladansinn, hræódýrt og sniðugt !
Ég á enga almennilega skó til að dansa í, þarf að bæta úr því, sá að flestar stelpurnar voru í svona dansstrigaskóm, líst mikið betur á það fyrir bakið á mér en háhælaða ! Annars vantar mig skó bara fyrir öll tilefni nánast :S)
