Bíóferð#11 Flickan som lekte med elden
Mamma var svo góð að bjóða mér út að borða á Krua Thai og í bíó, við hittum svo Guðrúnu, Ellu Báru og Heiðar í bíóinu. Fórum í Háskólabíó, sal 4 og ég var nú ekki hrifin, pínku lítill og með 2 útgönguskilti sem loguðu þvílíkt bjart. Keyptum miðana og svo var enginn sem tók við þeim, spurning hvort þetta hafi verið tilfallandi eða hvort það sé bara ekkert fylgst með þessu þarna. Á Krua Thai vorum við í nýbúin að panta þegar ég snéri mér við og horfði á fyrrveranda kærasta minn sem var einmitt þarna líka með mömmu sinni ! Lítill heimur en þau voru að taka með sér heim svo við borðuðum nú ekki saman.
Mér fannst þessi mynd ekkert síðri en fyrri. Gaman að sjá svona öðruvísi myndir og mér finnst Lisbeth Salander ennþá æðislegur karakter :-) Bíð spennt eftir næstu mynd. Svo ætla ég líka að lesa bækurnar þegar ég er aðeins farin að gleyma myndunum (s.s fyrir jól líklega hehe).
Mömmu fannst myndin samt hálf erfið og ég held ég fari frekar með hana næst á Disney mynd heldur en næstu Lisbeth Salander mynd ;-)


Vó hvað ég myndi viljað hafa verið fluga á vegg!
Já, þetta er ekki leggjandi á hana mömmu þína :-)…en ég er sammála, myndin var æðisleg og ég bíð spennt eftir næstu mynd. Takk fyrir samveruna :-)