Jólaglaðborð
Ég fór í jólaglaðborð og spilerí hjá sætu sætu Iðunni vinkonu og Sverri hennar á föstudaginn. Ég ætlaði nú ekki að fara út af bakinu en Iðunn sagðist ætla taka frá pláss í sófanum fyrir mig svo ég fór og lá eins og skata í sófanum hennar allt kvöldið, tók allt plássið frá vini mínum og var oftast með lappirnar bara í fanginu á honum, það er frábært að eiga æðislega og skilningsríka vini ! Ég var mjög fegin að hafa farið því það var mjög gaman og ég kom heim um hálf þrjú um nóttina. Það komu allir með eitthvað í boðið og ég fór með franska súkkulaðiköku og át ferlega mikið af henni sjálf ! :-)
Tinni hennar Iðunnar var ótrúlega mannblendinn, ég fékk að klappa honum alveg heillengi og fékk meira að segja að halda á honum líka ! Vanalega hverfur hann alltaf þegar maður er í heimsókn.

takk fyrir komuna, þetta var virkilega skemmtilegt og kakan þín auðvitað gjörsamlega út úr heiminum góð