Sörubakstur
Ég fór til Kalla og Benna á miðvikudaginn og við bökuðum sörur. Kalli sá að mestu um baksturinn en við Benni um að setja sörurnar saman, það var mjög gaman. Kalli sagði að ég væri með 5 þumalputta og við Benni ákváðum að við ættum subbuverðlaun dagsins skilið :-) En þær voru bara mjög fínar í útliti og enn betri á bragðið. Næst langar mig að prufa að búa til sörur með minna eða engu kaffi.
Verst að þetta fór algerlega með bakið á mér, það var slæmt fyrir en var algerlega í rúst á eftir :(
