Sushi
Mér var boðið í Sushi af sætum stráki í dag. Ég hef aldrei verið sannfærð um að ég sé Sushi manneskja, sérstaklega ekki þar sem það er þari í þessu og það er grunur um að ég sé með þörungaofnæmi. En þar sem ég er að lifa eftir “prófa allt einu sinni” og að reyna að ögra mér þá ákvað ég að smakka (var alveg búin að gera honum grein fyrir að mér fyndist mjög ólíklegt að mér þætti þetta gott) og mér fannst þetta eiginlega alger viðbjóður. En ég get þó allavega sett þetta á listann yfir eitthvað nýtt sem ég hef prófað ! :-)
