Bakfréttir

This entry was posted by Linda Rós on Friday, 15 January, 2010 at

Ég fór í segulómskoðun í gær, þurfti að bíða í litlar 80 mínútur, þar af helminginn af tímanum á venjulegum biðstofustól, restina á lazy boy stól, sem betur fer. Sem betur fer er bakið á mér hætt að vera jafn viðkvæmt og um daginn svo ég lifði þetta nú alveg af. Læknirinn hringdi svo áðan og ég er að fara í aðgerð í næsta mánuði líklegast, hann hefur samband við mig um miðjan febrúar.

Ég er búin að vera frekar lítil, leið og kvíðin yfir þessu öllu saman og langar alls ekki í aðgerð en aftur á móti er ég orðin leið á 14 árum af bakverkjum að ég er bara reiðubúin að kýla á þetta og vona það besta !

One Response to “Bakfréttir”

  1. Ella Bára

    Æi, mikið vorkenni ég þér að standa í þessu. En ég skil að þú viljir fara í aðgerðina til að reyna að fá bót meina þinna. Ég mun hugsa til þín og vona það besta fyrir þig , Knús og klem


Leave a Reply