Bíóferð#1 Avatar
Ég fór loksins á Avatar í gær, hafði ætlað síðan löngu áður en hún var frumsýnd en var ekki búin að þora að fara út af bakinu á mér, í síðustu viku sá ég svo að myndin yrði í Lúxussal og hoppaði hæð mína í loft upp af gleði og keypti 2 miða, 2 dögum seinna, ca 2 klst fyrir sýningu komst ég að því að þetta voru mistök og þetta væri bara 2D sýning, svo ég hringdi og fékk endurgreitt. Ákvað svo að fara í gær, setti á mig bakbelti, fór með 2 púða, tók verkjalyf og hafði með mér, fór í íþróttabuxum og ecco sandölunum mínum = einstaklega sexy. Snjólaug vinkona var svo góð að fara með mér og sótti mig og keyrði mig heim. Ég ætlaði varla að geta staðið upp eftir sýninguna og er aldeilis að kenna á því í dag að hafa farið en það var fullkomlega þess virði !
Avatar er ÆÐI ! Hún er pottþétt komin á topplistann yfir uppáhaldsmyndirnar mínar ! Fyrir minn smekk þó hefði alveg mátt sleppa öllu vondrakalladótaríinu og hafa þetta bara ástargamanmynd ! :-)
Annars held ég að ég muni aldrei finna mér mann, ég vil bara bláan, 3m háan með hala !
![]()
