Leiðindi

This entry was posted by Linda Rós on Friday, 22 January, 2010 at

Mér finnst alveg svakalega leiðinlegt að hanga svona. Ég kemst lítið úr húsi (get varla setið, gengið né staðið) hef ekki mætt á Hvítabandið síðan um miðjan desember og sakna þess svakalega, búin að missa af nokkrum útskriftum sem mér finnst mjög leiðinlegt. Það geta liðið dagar á milli þess sem ég hitti fólk, sem betur fer á ég nokkra góða vini sem koma að heimsækja mig.

Mig vantar kall til að stjana við mig (og til að stjana við!) ! Auglýsi hér með eftir einum ! Þarf helst að vera blár, 3m hár og með hala (en ég skoða ýmislegt!).

Núna væri snilld að hafa meðleigjanda (talandi um meðleigjanda, er búin að vera að horfa á allar seríurnar af How I Met Your Mother, snilldar þættir !)


Leave a Reply