Eitt fjall á viku

This entry was posted by Linda Rós on Friday, 22 January, 2010 at

Ferðafélag Íslands er með hóp sem heitir “Eitt fjall á viku“, rosalega langar mig ! Vonandi verður þetta aftur á næsta ári, þegar! bakið á mér verður komið í lag !

Ég var í hálfgerðu svona í sumar, var með þriðjudagsgöngufélaga í nokkrar vikur sem var æði (bæði að hafa reglulegan göngufélaga og göngufélaginn sjálfur).

—————————-
Eitt fjall á viku – upplýsingar

Markmið

* Ganga á 52 fjöll á árinu•Stunda relgulega útiveru og hreyfingu
* Taka þátt í skemmtilegum félagsskap
* Setja sér ýmis önnur markmið um bætt líkamlegt form, þol og þrek, styrkjast, léttast osvfrv.

Fyrirkomulag

* Eitt fjall á viku, samtals 52 fjöll á árinu.
* Fyrstu 6 gönguferðirnar eru á sunnudögum kl. 11, næstu 6 gönguferðirnar eru á laugardagsmorgnum kl. 9, næstu 6 eru á miðvikudögum kl. 18 og næstu 6 eru á fimmtudögum kl. 18. Á þremur vikum ársins er safnað 10 fjöllum þannig að færi gefist á 10 vikna sumarfríi. Í sumarfríinu eru heimaverkefni sem eru eitt fjall á viku, að eigin vali en bent verður sérstaklega á 10 fjöll víða um land og sérstaklega er bent á ferðaáætlun deilda FÍ.

Búnaður

* Góðir gönguskór
* Göngufatnaður/hlífðarfatnaður/ vatns og vindheldur, auka peysa, ull eða fleece
* Legghlífar
* Bakpoki
* Sólglerauga
* Göngustafir
* (fararstjórar hafa með sér ýmsan öryggisbúnað, gps tæki, talstöðvar, sjúkrakassi, góða skapið ofl.

Fjöllin 52

•Helgafell Arnarfell •Úlfarsfell Búrfell •Mosfell Vörðufell •Grímarsfell Mosfell •Húsfell Fjallið eina •Skálafell Eyjar í Hraunhafi •Móskarðshnúkar (Þórmörk – helgarferð) •Valahnúkar Valahnúkur •Keilir Rjúpnafell •Helgafell – Mosó Réttarfell •Vífilsfell Útigönguhöfði •Hrafnabjörg Háutindar •Hekla Snæfellsjökull •Þverfellshorn •Stóra Kóngsfell •Akrafjall •Hengill •Hvannadalshnúkur •Herðubreið •Botnssúlur Ármannsfell •Búrfell •Skálafell – Hellisheiði •Þorbjörn •Skarðsmýrarfjall •Kvígindisfell Kerling •Skjaldbreiður •Hlöðufell •Laugarvatnsfjall •Gullkista – Miðdalsfjalli •Heiðartoppur Hoffell •Miðdegishnúkur við Kleifarvatn •Festarfjall Tröllakirkja •Heiðarhorn •Hvalfell •Stóri Meitill •Geitafell Einhyrningur •Ingólfsfjall •Jórutindur – Dyrafjöll Sveinstindur

Þátttökugjald í verkefninu

* Kr. 1000 á fjall, alls kr. 52.000 sem ganga þarf frá í upphafi verkefnis
* Skipta má greiðslum niður í allt að fjórar greiðslur.
* Í öllum ferðum er farið á einkabílum. Þátttakendur taka þátt í sameiginum ferðakostnaði
* Hægt að fá styrki frá vinnuveitanda/stéttarfélögum til þátttöku í verkefninu.


Leave a Reply