Endurhæfingalífeyrir
Ég er búin að vera nánast tekjulaus síðan í september/október ca. Var þar áður að fá sjúkradagpeninga frá VR og TR, er held ég enn að fá einhverja hundraðkalla á dag frá TR. Ég sótti um endurhæfingalífeyri og var að fá svar: “Ekki er unnt að taka afstöðu til umsóknar þinnar miðað við fyrirliggjandi gögn”. Æði !
Ég eyddi hundruðum þúsunda í heilsu mína í fyrra (læknar, sálfræðingar, sjúkraþjálfarar, lyf) svo það ætti nú að vera frekar augljóst að ég sé að vinna í mínum málum, gæti alveg ímyndað mér eitthvað meira skemmtilegt til að eyða peningunum mínum í ! og ég er í meðferð á Hvítabandinu (dagdeild geðdeildar) eða tja var það þar til bakið á mér fór í rúst, ég mun svo vonandi fara og klára prógrammið þar og læknisvottorðið kom þaðan…
Þetta er svo innilega ekki gott fyrir geðheilsuna mína :( Að vera tekjulaus og vita ekkert hvort ég fái eitthvað út úr kerfinu… mig langar hreint út sagt bara að fara að gráta ! Gífurlega pirrandi að þurfa alltaf að standa í öllu sjálfur í þessu heilbrigðiskerfi.
—————————-
Bréfið frá Tryggingastofnun:
Borist hefur umsókn þín um endurhæfingarlífeyri ásamt læknisvottorði frá X.X á Landspítala.
Ekki er unnt að taka afstöðu til umsóknar þinnar miðað við fyrirliggjandi gögn.
Til að hægt sé að taka afstöðu til umsóknar þinnar þarf að liggja fyrir skýr endurhæfingaráætlun þar sem fram koma upplýsingar um markmið og innihald endurhæfingar þinnar, hve oft í viku þú munt stunda endurhæfingu þína og hve lengi í senn.
Mikilvægt er að endurhæfingaráætlun þín sé gerð í samvinnu við meðferðaraðila þinn eða ráðgjafa, t.d hjá félagsþjónustu, heilsugælsu, Starfsendurhæfingu eða Starfsendurhæfingarsjóði VIRK. Staðfesting þarf að liggja fyrir um það hver muni halda utan um endurhæfingu þína.
Einnig er óskað eftir staðfestingu frá sjúkrasjóði stéttarfélags þíns um að áunnum rétti þínum til greiðslna vegna veikinda sé lokið eða réttur ekki til staðar.
Umsókn þín verður tekin fyrir að nýju þegar umbeðin gögn liggja fyrir.

Æhj, þetta fj.. kerfi er alltaf eins og það á ekki að vera..
En mig langaði bara að segja þér að mér finnst þú alveg rosalega dugleg og hugrökk. Margur væri bara farinn yfirum og lagstur í volæði, en þú hefur einhvern kraft í þér sem drífur þig áfram. Ég vona svo sannarlega að bakið þitt fari nú að vera til friðs svo þú getir haldið áfram að sinna geðinu og mundu Linda mín að mér finnst þú vera algjör nagli, bara langflottust ;)
Takk fyrir þetta Kolla mín, það hjálpar rosalega mikið að fá svona falleg comment frá fólki *risaknús*