Viðburðalítill mánuður
Janúar var einstaklega viðburðalítill mánuður, er innilega þakklát fyrir Ronju mína, vídeóefni, bækur (er loksins aðeins komin í bókagírinn aftur) Facebook og MSN en þetta allt hefur algerlega bjargað mér frá að missa vitið. Sérstaklega hjálpaði nýr MSN vinur mér gífurlega í byrjun mánaðarins eftir að ég fékk erfiðu fréttirnar. Ég held ég hafi ekki upplifað svona leiðinlegan mánuð áður og alls ekki svona verkjamikinn mánuð. Líða oft margir dagar á milli þess að ég hitti fólk, það er komin vika núna en þá fór mamma til útlanda. Ég er nokkuð viss um að það sé met. Fannst dálítið erfitt fyrst að vera svona mikið ein en það venst, er alveg sátt núna.

Hér eru 2 bækur sem ég er búin að lesa í veikindaleyfinu mínu og mér fannst þær alveg magnaðar. Mig langaði bara að benda þér á þær ef þig vantaði eitthvað til að lesa.
Knús og klem
http://www.eymundsson.is/pages/269?ItemID=
http://bokatidindi.oddi.is/listi/bokavefur/bokatidindi_ytarlegt.php?b_id=3944&argangur=2006
Ég las Þrettándu sögu fyrir talverðu síðan, fannst hún lengi í gang en var svo rosalega góð. Hinn linkurinn er eitthvað ruglaður ;-)