Út úr húsi

This entry was posted by Linda Rós on Sunday, 7 February, 2010 at

Ég komst út úr húsi á föstudaginn, Kjartan vinur minn kom og sótti mig og við fórum og fengum okkur pizzu á Eldsmiðjunni, það var meira að segja afgangur af mínum helmingi sem fékk að koma með heim í kassa og var étinn í gær :-)

Horfðum svo á videó, fyrst á Star Trek: First Contact og byrjuðum svo að horfa á Robin Hood: Men in Tights en hún var á videóspólu og við gátum ekki spilað meira en ca korter af myndinni *hágrát*. Fórum þá að horfa á James Bond: Goldfinger. Vinur minn sofnaði yfir henni og hraut hástöfum, Ronja greyið vaknaði, reisti sig mygluð upp og horfði á orsök óhljóðanna með undrunarsvip !

Rosalega var gott að komast út úr húsi. Fólk sem kemur i heimsókn með mat, býður mér út úr húsi eða býður mér í mat er alveg pottþétt á vinsældalistanum þessa dagana. Liðu 8 dagar um daginn þar sem ég hitti engan !

3 Responses to “Út úr húsi”

  1. Guðrún Lilja

    Við frænkurnar þurfum að gera eitthvað skemmtilegt aftur! River rafting var baaara gaman!:)

  2. Anna frænka

    ég er laus í sumar..heh held ég :P skal glöð gera eitthvað með þér þá svo þú þurfir ekki að hanga ein alla daga

  3. Linda Rós

    Guðrún Lilja: Já endilega ! Þetta var æði hjá okkur !

    Anna frænka: Já !!!! T.d fleiri fjölskylduferðir ! Við og börnin ! ;-)


Leave a Reply