Bakaðgerð
Jæja það er komin dagsetning, næsti fimmtudagur (18. febrúar). Fer á spítalann í undirbúning á miðvikudaginn og svo aðgerð á fimmtudaginn og heim á föstudaginn. Ég er frekar mikið stressuð og lítil yfir þessu en reyni að horfa á gulrótina, vonandi leysir þetta mín vandamál svo ég geti farið að lifa eðlilegu lífi ! Sumir verða víst vinnufærir nokkrum dögum eftir aðgerð, aðrir 2-4 vikum seinna.
Stefni á bíóferðir, leikhúsferðir, út að borða ferðir, gönguferðir og fleira og fleira
Ber er hver að baki – brjósklos á Íslandi
Bakaðgerðir – Undirbúningur og eftirmeðferð – Heila- og taugaskurðdeild B-6

Þetta á eftir að ganga eins og í sögu og vonandi leysir aðgerðin öll þín vandamál eins og þú segir. Ég hugsa til þín.
Gangi þér vel Linda mín.Og vertu fljót að jafna þig svo við getum farið á Loftkastalinn sem hrundi sem fyrst:-)
Knús og klem
Takk takk :-)
Já ég bíð spennt eftir að sjá síðustu myndina !