Stuðningur
Það kom mér rosalega á óvart í þessum veikindum mínum hvað margir sem ég héldu að myndu sýna mér stuðning, heimsækja mig, hressa mig við og svona gerðu það svo alls ekki. En aðrir sem ég átti engan veginn von á að myndu gera það, gerðu það. Maður sér held ég á svona stundum aðeins meira hvað býr í fólki, margt kom skemmtilega á óvart :-)
Ég vil sérstaklega þakka öllum sem heimsóttu mig og buðu mér í heimsókn ! Vil líka þakka öllum sem héldu mér félagsskap á netinu og öllum þeim sem sendu mér batakveðjur ! Þið eruð öll yndisleg ! *risa knús*
