Yndislegt !
Ég svaf í nótt í rúmi sem ég hef yfirleitt verið slæm í bakinu eftir að hafa sofið í, ekkert vandamál ! Svaf á maganum án þess að þurfa að hafa kodda eða sæng undir mér og án þess að fá í bakið ! Gerði heiðarlega tilraun til að sofna snemma, var komin upp í rúm fljótlega eftir miðnætti, án tölvunnar ! en gat ekki sofnað, svo ég las til rúmlega 3, er að lesa bók sem ég fékk lánaða hjá Sigrúnu og Kim sem heitir On the Edge eftir Ilona Andrews, hún er alveg að halda mér við efnið.
Barnapían kom svo um 11 leytið og gaf mér að borða, við fórum svo í göngutúr niður að læk og tilbaka, ég moppaði svo aðeins yfir hluta af efri hæðinni og Guðrún þurrkaði af. Kalli og Benni komu svo og Kalli er að elda og baka fyrir mig ! YNDISLEGT !
Er farin að pissa eðlilega, skekkjan á bakinu minnkar með hverjum degi, er eiginlega orðin nokkuð eðlileg núna. Get staðið og labbað og setið og bara allt !
Er smá aum í kringum skurðinn, finn fyrir því þegar ég ligg á bakinu og svona, dofinn er enn í löppinni en truflar mig ekkert voðalega.
Mun passa mig vel næstu 4-6 vikurnar en eftir það get ég vonandi farið að gera allt sem mig langar til og meira ! Ætla kannski að reyna við ræktina ! Annars daglega göngutúra og fara eitthvað í sund !

Snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld, snilld!
Gott að heyra að aðgerðin gekk vel. Vonandi er þetta búið og kemur ekki aftur :) Farðu vel með þig á meðan þetta er að gróa!!!
Frábært!