Framhaldið
Næstu 4-6 vikurnar mun ég bara passa upp á að bakið grói og fara í göngutúra og gera æfingar og svona til að þetta fari allt sem best. Ætla ekki að gera neitt sem gæti skaðað batann ! Ég mun svo fara á Hvítabandið að klára prógrammið þar, hvað svo… Það er stóra spurningin, ég er að velta fyrir mér að reyna að komast í STRONG áhugakönnunina. Þarf að komast í starf sem heldur geðheilsunni í sem bestu ásigkomulagi. Fyrir utan að vinna með dýr þá veit ég ekki alveg hvaða starf það er, kannski sækir maður bara um í dýragarði/dýraverndunarsvæði erlendis einhvern daginn. Þarf líka að finna mér varanlegt húsnæði en það fer væntanlega aðeins eftir starfinu, væri þess vegna til í að sækja um bara hvar sem er á landinu, kannski erlendis líka (fæ samt vægt panic kast þegar ég hugsa um að fara ein erlendis).
Kemur í ljós, kemur í ljós !

Mér líst vel á þessa Strong áhugakönnun. Ættir alveg endilega að skella þér…..og er það ekki svo river rafting í sumar….ég var svo mikið að hugsa um það í morgun. Reynum að drífa sem flesta með okkur :-)