Helgin
Helgin mín var bara nokkuð góð, á föstudagskvöldið og laugardagskvöldið borðaði ég ostaköku og horfði á videó með Sigurgeiri besta vini mínum.
Á laugardeginum kom Bjössi vinur minn með bakkelsi og fiskirétt handa mér, við byrjuðum á að éta bakkelsið, fórum svo í göngutúr, komum inn og horfðum á einn Firefly þátt. Borðuðum svo fiskréttinn og hann ryksugaði svo allt og baðaði Ronju ! Eðal heimsókn ! Enda hefur ekki verið ryksugað út í horn og undir hluti mjög mjög lengi ! En með batnandi baki verður þrifnaðurinn hérna meiri ! Ekki það að þetta hafi verið sérlega slæmt, ég er mjög þrifin og snyrtileg. En þegar maður er með hund, sérstaklega hund sem fer úr hárum þá vilja hundahár safnast saman um allt !
Ronja slapp svo út á laugardaginn, ekki með ólina eftir baðið svo hún var ekki merkt. Fyrsta skipti sem hún sleppur út í borginni og ég fékk þetta væga sjokk, var farin að fara í gegnum símaskránna mína um hverja ég gæti hringt í til að reyna að finna hana. En sem betur fer sá ég hana fljótt og Sigurgeir var svo góður að ná henni, enda er hún voða skotin í honum. Ég hljóp út í mjög þunnum buxum og bol og Sigurgeir var svo mikill herramaður að lána mér jakkann sinn ! Ég hélt að svona herramenn væru ekki lengur til !
