Fiskur
Ég er alveg hætt að borða ýsu, nema ef mér er boðið upp á hana þá borða ég hana náttúrulega. En ég er búin að uppgötva töfraheima fisktegunda og núna er ég voðalega hrifin af keilu og löngu. Mamma var svo góð að bjóða okkur Rúnari út að borða á Lauga-ás í fyrradag og ég fékk mér blálöngu sem var ofsa góð. Keypti keilu í fyrsta skipti á síðasta ári og féll alveg fyrir henni, mamma kom svo um daginn með löngu handa mér og ég féll alveg fyrir henni. Þessar tegundir eru líka góðar upphitaðar daginn eftir, ég gæti ælt við að borða ýsufiskrétt daginn eftir.
