Matarræði
Ég hef nú aldrei verið sérlega skynsöm í matarræði, oft lifað á brauði og morgunkorni. Sérstaklega eftir að ég hætti í sambandi með gaur sem er snillingur í eldhúsinu og sá um megnið af eldamennskunni. En ég er alveg að slá öll met núna, ég er bara alltaf lystarlaus, langar ekki í neitt, oft óglatt og er bara að borða alltof alltof lítið. Þegar ég steig á vigtina um daginn, sýndi hún 51,4 kg. Ég held ég hafi ekki verið svona létt síðan í menntaskóla ! Skv BMI er allt undir 54 kg vannæring, ekki það að ég líti á BMI sem einhvern sannleika, en ágætis viðmiðun. Ég fór og keypti mér Build up pakka um daginn, hef gert það stundum í gegnum tiðina þegar ég fer á svona skeið. En ég er með eitthvað jafnvægisskyn sem veldur þessari ógleði, verð líka bílveik, flugveik, sjóveik ofl. Segi oft að ég verð dagsdaglega veik ;-)
Ef einhver veit um karlkyns einhleypan næringafræðing… eða karlkyns einhleypan snilling í eldhúsinu þá endilega beinið þeim til mín ;-)

Það er svo auðvelt að detta í að borða mikið af brauði. Þetta er gott, fljótlegt og handhægt. En þetta með flug, bíl og sjóveikina. Ég er svona líka. Það er nóg fyrir mig að standa niður á bryggju þá verð ég sjóveik. Og að fara um borð í skip sem er í gangi en fast við bryggju, ég verð sjóveik….þetta er náttúrlega ekki í lagi….og að fara í hressilega tívolí tæki…það er algjör pína :-)