Bakfréttir
Í dag eru liðnar 4 vikur frá aðgerð, það á að taka 4-6 vikur að jafna sig. Doðinn er enn til staðar en búinn að lagast mikið, ég finn almennt alltaf fyrir bakinu, engir verkir eins og fyrir aðgerð en bara eins og hefur alltaf verið á “góðu tímabilunum”. Ég er að vonast til að það fari þegar lengra líður en aðgerðin var engin ávísun á að bakverkirnir myndu allir hverfa, sérstaklega ekki því ég var ekki með mikla “brjósklosverki”. En ég er voða bjartsýn, þýðir ekkert annað !
Ég fór til heilsugæslulæknis á þriðjudaginn, er búin að vera tekjulaus allt þetta ár og eiginlega frá og með nóvember síðasta. Hann ætlar að athuga með annað hvort endurhæfingalífeyri fyrir mig eða tímabundna örorku. Hann ætlar líka að athuga með Reykjalund fyrir mig, þar kæmist ég í sjúkraþjálfun sem væri eðal fyrir bakið á mér. Annars tala ég við þær á Hvítabandinu og fer og lýk meðferðinni þar.
En ég er farin að gera flest, fór á kaffihús um daginn og sat þar í rúma 2 tíma, farin að keyra allt sem ég vil og farin að fara sjálf út í búð! Fór í IKEA í gær fyrir mömmu og endaði á að kaupa mér mikið meira en handa henni, keypti 2 blómavasa (fékk tvisvar blóm um daginn og átti enga blómavasa!, nú þegar ég á blómavasa mun ég eflaust ekki fá nein blóm ;-), ilmsprittkerti, kertastjaka og handklæði (svo ég geti nú verið öflug í sundi eins og ég er alltaf á leiðinni að verða!).
Næst á dagskrá er leikhús, bíó, salsa, ferðalög ! og vonandi margt fleira skemmtilegt :-)

Gott ad heyra ad tu ert oll ad koma til…og svo er tad bio i næstu viku :-)