VIRK og VR

:: VIRK ::
Ég fór í október 2010 og talaði við ráðgjafa hjá Virk – starfsendurhæfingasjóði og leist alveg svakalega vel á ráðgjafann. Mér fannst vera mikill baráttuhugur í henni og hún er bara alveg yndisleg og skilningsrík. Alveg pottþétt í rétta starfinu. Ég var hálf hrædd um að lenda á einhverjum sem væri ekki mjög áhugasamur um sína vinnu, eins og ég hef lent svo mikið í í heilbrigðisgeiranum.

Í kjölfarið fór hún að vinna í öllum mínum málum og í kjölfarið fór ég í endurhæfingamat hjá endurhæfingalækni, sjúkraþjálfara og sálfræðingi. Ég hafði eitthvað heyrt um VIRK áður en vissi ekki almennilega hvað þetta væri, hvað þá hvort ég ætti rétt á að fara þangað eða ætti erindi þangað. Ég hefði viljað fara þarna mörgum mánuðum fyrr!

:: Sjúkrasjóður VR ::
Ég bendi þeim sem eru í VR á sjúkrasjóð VR, þetta er frekar vel geymt leyndarmál. Ég rakst á þetta af tilviljun. Ég fékk 80% af laununum í 9 mánuði og sjúkradagpeninga frá TR á móti.

:: Styrkir VR ::
VR er með ýmsa styrki, maður safnar í varasjóð og starfsmenntunarsjóð.

Þegar ég byrjaði í World Class í haust þá fékk ég greitt úr varasjóðnum, þegar ég fór í laseraugnaðgerð árið 2008 þá fékk ég líka úr varasjóðnum.

Þegar ég fór á hvolpanámskeið árið 2008 þá fékk ég greitt úr starfsmenntunarsjóðnum (þetta er vel geymt leyndarmál, ég var bara svo heppin að vera á námskeiðinu með starfsmanni VR sem sagði okkur þetta).


Ykkur er velkomið að hafa samband við mig ef þið viljið spyrja mig um eitthvað.

This entry was posted in Úrræði. Bookmark the permalink.

One Response to VIRK og VR

  1. Kristólína G Jónsdóttir says:

    Komdu sæl Linda Rós

    heiðu nú man ég ekki hvernig ég rakst á síðuna þína en mikið er gaman að lesa hana jú að vísu þó að sumt á henni sé miður en eins og staðan er í dag hjá þér þá er mjög gaman að lesa hana hvernig þú hefur náð að standa þetta allt af þér vina mín .
    Þú átt mikið já alveg rosalega mikið hrós skilið fyrir að koma svona heiðarlega og hreinskilningslega fram og leifa okkur hinum hér út í þessu þjóðfélagi að lesa og fá innsýn inn í líf þitt vinan.
    Gangi þér vel og haltu áfram að berjast .
    kveðja
    Lóa Jónsd ( er alltaf kölluð það )

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>