Reykjalundur

17. janúar 2011 fór ég í 3 daga forinnlögn á Reykjalundi. Vanalega er svo nokkurra vikna bið eftir að komast inn, þar sem fólk er hvatt til að minnka lyfjanotkun, hætta að reykja, hreyfa sig meira og svo framvegis en þetta var allt í góðu standi hjá mér svo ég byrjaði strax í vikunni á eftir og var í 5 vikur.

Mér leist mjög vel á þetta. Maður er rosalega einn í heiminum samt í forinnlögninni, maður er mest einn, mikið af götum og hangsi og enginn svona kynningarfundur með hinum sjúklingum eða hvar allt er. En svo kynnist maður smá saman fólki. Maður er rosa mikið í að spyrja og leita fyrstu dagana en svo lærir maður á þetta allt saman. Stundaskrárnar eru mismunandi eftir einstaklingum. Það er ekkert kynnt fyrir manni hvað er í boði svo það er um að gera að spyrja aðra sjúklinga eða starfsmenn hvað er í boði og láta setja sig í það sem manni langar til að vera í.

:: Stundaskrá 3 daga forinnlagnar, 17. jan – 19. jan 2011 ::

:: Stundaskrá vika 1, 24. jan – 28. jan 2011 ::

:: Stundaskrá vika 2, 31. jan – 4. feb 2011 ::

:: Stundaskrá vika 3, 7. feb – 11. feb 2011 ::

:: Stundaskrá vika 4, 14. feb – 18. feb 2011 ::

:: Stundaskrá vika 5, 21. feb – 25. feb 2011 ::

:: Djúpvöðvakerfið::
Þau leggja rosalega mikla áherslu á að koma djúpu vöðvunum í gang en þeir fara víst allir í frí hjá fólki með langvarandi bakverki. Hjá venjulegu fólki fara þeir t.d í gang þegar það réttir upp hönd en hjá okkur er höndin komin langleiðina upp þegar eitthvað fer að gerast hjá þeim. Ég er komin með æfingar sem ég á að gera á hverjum degi og það mun taka ca 3-12 mánuði fyrir þá að komast á ról og þá mun ég vonandi verða allt önnur manneskja! :-)

Af öllum þeim fagaðilum sem ég hef farið til hefur bara einn lagt áherslu á djúpvöðvakerfið og það var sjúkraþjálfari hjá Hreyfigreiningu 2003-2004, en það var bara á djúpu kviðvöðvana ekki bakvöðvana og ekki nærri því jafn mikil áhersla og á Reykjalundi.

:: Matur ::
Maturinn á Reykjalundi er fínn. Stundum ofsa góður, stundum ekkert spes en þá er alltaf salatbar :-)

Morgunmatur: Er bara frekar hefðbundinn, brauð, hrökkbrauð, smurostur, ostur, smjör, kæfa. Hafragrautur. Fullt af morgunkorni, mjólk, súrmjólk. Ávextir. Eplasafi og appelsínusafi. (örugglega að gleyma einhverju).

Hádegismatur: Alltaf rosalega góður matur, annað hvort hrísgrjón eða kartöflur og alltaf heitt grænmeti. Svo er salatbar, með fullt af salati og grænmeti, fetaosti, cashew hnetur, kotasælu, rauðlauk o.fl. Ég er búin að vera í mat núna þrisvar og þetta er með betri mat sem ég hef fengið! Ég var fyrirfram frekar stressuð með þetta, hélt ég yrði jafnvel að koma með nesti!

Kaffi: Brauð, hrökkbrauð, smurostur, ostur, mysingur, gúrka. Á miðvikudögum og föstudögum er svo líka kaka.

Ég setti sem fb status: Á Reykjalundi á maður að setja sér markmið. Ég er strax komin með eitt, að giftast kokkinum á Reykjalundi! (hann þyrfti ekki að elda ofan í mig nema um helgar, virka daga gæti hann bara komið með afganga!). En svo í vikunni á eftir: Kokkurinn á Reykjalundi lét mig vita í dag að hann vill ekki giftast mér *hágrát* Hann lét mig vita með að hafa nautagúllasrétt með kartöflumús og hálf illa útlítandi heitu grænmeti í dag, sem var bara ekkert spes, og ætlar að bjóða upp á kinnar á morgun og lambaskanka á fimmtudaginn! Einfalt nei takk hefði sko alveg dugað mér!


Facebook status: Ég hef komist að því hjá sjúkraþjálfurum og iðjuþjálfurum á Reykjalundi að ég geri allt rangt (sit vitlaust, geng vitlaust, stend vitlaust, beiti mér vitlaust….), ég held ég verði bara að fá sjúkraþjálfara á heimilið í fulla framtíðarvinnu við að leiðrétta þetta!


Ykkur er velkomið að hafa samband við mig ef þið viljið spyrja mig um eitthvað.

This entry was posted in Almennt, Úrræði. Bookmark the permalink.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>