Ég hef verið að gæla við að hætta á lyfjunum mínum (Seroquel Prolong) núna í smá tima og ég hætti að taka þau á fimmtudaginn. Ég gerði þetta að vel ígrunduðu máli.
Í fyrra var ég alvarlega þunglynd og með mjög alvarlegar sjálfsmorðshugsanir. Ég fór upp á geðdeild, fékk þessi lyf, tók þau að kvöldi og morguninn eftir birti til. Lífið varð betra. Þau tóku versta þunglyndið í burtu og mesta kvíðann. Ég hef verið á þessum lyfjum síðan en þau hafa aukaverkanir, eins og öll önnur lyf.
Kostir:
- Þau tóku í burtu versta þunglyndið (en áður en ég datt niður í versta þunglyndi þá upplifði ég 5 vikur af sterkri lífslöngun, án lyfjanna).
- Þau taka í burtu versta kvíðann.
- Þau hjálpa mér að sofa betur.
Gallar:
- Þau taka í burtu versta kvíðann, en skilja alveg slatta af kvíða eftir. Mér finnst ekki vera það mikill stigsmunur núna þegar ég er komin í gott andlegt jafnvægi, þegar ég var ekki í góðu andlegu jafnvægi þá fann ég meiri mun.
- Ég sef alltaf til hádegis, er rosalega þung og sljó fyrir hádegi, sem er ekkert sérstaklega gaman, sérstaklega á sumrin!
- Og ég hef þau grunuð um að valda miklu minnisleysi sem ég hef verið að upplifa síðan í desember, sem truflar mig mjög mikið. Mjöööög mikið! Ég hef verið að gleyma og týna hlutum (eitthvað sem er mjög ólíkt mér), gleyma nöfnum á fólki sem ég á að vita nöfnin á….
Síðan ég hætti á lyfjunum hef ég verið að vakna á milli 7-10. Ég er búin að vera veik síðustu daga svo ég er búin að vera að sofa til svona 10.
Í morgun er ég búin að vera vakandi heillengi, fékk mér hafragraut í morgunmat (bjakk) sem var þó aðeins skárri með viðbættu vanilluskyri (sem kallast þá víst hræringur! lærði það áðan) og Bónus Múslí. Í staðinn fyrir að mæta þreytt og ekki búin að borða neitt í vinnuna þá mæti ég frekar hress og búin að borða fyrir vinnu! Tja reyndar er ég veik svo ekki alveg það hress.
Status: Í hinum fullkomna heimi væri ég veik heima í dag. En þar sem ég er að drepast úr samviskusemi þá er ég farin að klæða mig fyrir vinnuna. Það eru svo margir veikir og í fríi að ég kann ekki við að tilkynna mig veika. Ég fór ekki á jóganámskeið á mánudaginn því ég var veik og ég fór ekki í bíó í gær því ég var veik. En ég mætti að sjálfsögðu í vinnuna! Mætti meira að segja í gær, veik, á frídegi!
Ég var á minnsta skammti, 50mg og veit að ef ég fer að finna fyrir þunglyndi, vaxandi kvíða eða svefnleysi að ég get alltaf byrjað á þeim aftur og fundið mun strax.
Mig langar líka að prófa kvíðalyf. Mig langar til að prófa að reyna að losna við kvíðann sem hefur fylgt mér daglega síðan ég var um 6 ára. Ég man ekki og veit ekki hvernig það er að vera ekki kvíðin.


sæl :) vildi bara segja þér frá minni reynslu af seroquel :) ég verð rosalega þung af þessu lyfi, og ótrúlega dofin, þreytt og þetta hjálpaði mér bara að sofna og ekkert meir, svo er rosalega erfitt að vakna snemma eftir þetta lyf, og ef maður nær því, er morguninn rosalega erfiður því maður er einfaldlega dauðþreyttur! ég borðaði líka rosalega mikið af þessu lyfi, ég gat borðað endalaust og fitnaði auðvitað útaf því.
ég átti líka erfitt með að ná einbeitingu og fullt fleira útaf þessu lyfi :P
ég tók þetta alltaf áður en ég fór að sofa þegar ég var á reykjalundi 2007 og þetta lyf einfaldlega skemmdi fyrir mér dvölina þar.
ég er búin að vera lyfjalaus í ca 3-4 ár og mér líður ágætlega :) ég er svona eiginlega á móti svona þunglyndis og kvíðalyfjum nema ef maður er virkilega veikur og mér finnst að maður ætti að taka þau bara í stuttan tíma með talmeðferðum . ég held því fram að allskonar talmeðferðir eins og HAM og fleiri geta gert kraftaverk :)
og ég vil líka meina það að stundum skemma þau fyrir manni, sérstaklega kvíðalyf, því maður verður rosalega þungur af þeim.
ég er reyndar nýbúin að fá dauft lyf sem heitir phenergan sem ég tek bara ef ég get ekki sofnað vegna kvíða, mjög fínt lyf og maður verður ekki þungur daginn eftir af því :)
ef þetta er eina lyfið sem þú ert á myndi ég mæla með því að breyta um, því að þetta er algjör vibbi þetta seroquel að mínu mati og læknir minn er sammála mér ;)
Sæl Lilja og takk fyrir að svara. :-)
Já mig grunar þetta lyf einmitt um að valda enn verri einbeitingu og minnisleysi. En ég hef ekki borðað meira af þessu lyfi en áður. En kannast einmitt við erfiðu morgnana. Ég er búin að vera að sleppa þessum lyfjum í næstum 2 vikur núna og gengið ágætlega, nema í gær og í dag vaknaði ég upp með massa massa massa kvíðasting. Sem gerist ekki þegar ég er á lyfinu.
Ég hef einmitt prófað rosalega mikið af lyfjum og var á móti þeim fyrir mig. En veit af mörgum sem hafa fengið stórkostlegan bata af lyfjum. Svo ég er alls ekki á móti þeim. Finnst þau frábær fyrir þau sem þau virka á.
Ég hef prófað Seroquel Prolong (eina sem hefur virkað), Amillín, Wellbutrin Retard, Cipramil, Cipralex, Zoloft, Venlafaxín/Efexor Depot, Valdoxan, Exan og gæti verið að gleyma einhverju. Ég fékk einmitt Phenergan sem svefnlyf einhvern tímann. Var þá á Imovane til að svæfa mig og fékk svo Phenergan til að halda mér sofandi og ég var í móki fram að kvöldmat. En núna tek ég Phenergan við ógleði stundum.
En ég er alltaf með kvíða. Ég stunda þolæfingar, hef lært HAM og árvekni sem bæði hefur reynst mér óendanlega vel. Reyni að stunda hugleiðslu. En ég er komin á vegg. Þetta allt kom mér úr tæplega 60 stigum í Becks þunglyndisprófinu í 7. S.s ég er orðin minna þunglynd en hinn meðal Íslendingur semskorar 8 stig. En sama hvað ég geri, helvítis kvíðinn bara neitar að fara! Eina er að núna læt ég hann ekki stjórna mér nema að litlu leyti. En hann er samt alltaf þarna. Sem er eina ástæða þess að mig langar til að prófa kvíðalyf, eða athyglisbrestslyf. Mig langar að vita hvort ég geti losnað við kvíðann.
mér finnst kvíðinn hjá mér minnka alltaf á meðan ég er í þessum viðtölum, námskeiðum, og þess háttar, því að þá er alltaf eitthvað uppbyggjandi og pepp í gangi. en svo ef ég er ekki að fara í nein viðtöl eða námskeið þá er stundum eins og ég gleymi mér og dett í sama kvíða farið og rangan hugsunarhátt vegna gamla vanans. og ég er farin að halda að ég verði að vera að grípa í þetta “pepp” eins og HAM og svoleiðis til þess að halda mér við, svo að ég venjist öllu þessu :P
ástæðan fyrir því að ég er nokkuð á móti þunglyndis og kvíða lyfjum (nema í neyð), er vegna allra aukaefnana í lyfjunum, mér finnst þau líka breyta manni í einhvernskonar “zombie” hehe :P maður verður svo dofinn allur og ekki maður sjálfur einhvernveginn :P svo held ég því fram að mamma mín sé einsskonar tilraunadýr hjá einum lækninum! hann er bókstaflega búin að dæla í hana allskonar lyfjum í mörg ár! ég er ekki happy með það!
ég get talað endalaust um þetta og ég ætla ekki að drekkja þér í lestri hehe :P
en mér finnst æðislegt að tala um þessi vandamál við manneskju sem er með svipuð vandamál og ég :)