Nafn: Linda Rós
Hjúskaparstaða: Einhleyp & barnlaus
Fæðingarár: 1980
Menntun: B.S í tölvunarfræði (m. viðskiptafræðivali) – HR 2004
msn / e-mail: kisustelpa(at)gmail(punktur)com

Ég er bara lítil og saklaus sveitastelpa sem myndi helst vilja búa alltaf í sveitinni minni eða einhverri annarri sveit, lítill kósý bær kemur líka til greina, eins og Akureyri. Ég er orðin það mikil dekurrófa að ég þyrfti að hafa gott bókasafn, matvöruverslun með góðu úrvali og hot yoga æfingastað nálægt, svo að afdalasveit væri erfið fyrir mig. Einnig hefur mig alltaf langað til að búa erlendis.
Ég hef aðallega áhuga á dýrum. Ég á Cavalier King Charles Spaniel tíkina Ronju, hún er fædd 7. maí 2008 og er algert yndi en stundum smá erfið, greind ofvirk með athyglisbrest af dýralækni. Í sveitinni hjá mömmu eru svo 4 hestar, 1 hundur og 3 kettir.

Ég hef einnig gaman af lestri, sjónvarpsglápi, leikhúsferðum, bíóferðum, gönguferðum, reiðtúrum, sumarbústaðaferðum, spilakvöldum, bíltúrum, ferðalögum, fjallaferðum, hellaskoðunum, hot yoga (byrjaði að stunda það haustið 2010) og fleira og fleira. Ég hef gaman af að ögra mér og prófa nýja hluti, er tilbúin að prófa flest, innan skynsamlegra marka :-)

Ég er tölvunarfræðingur og hef unnið sem kerfisstjóri, fyrst í 50% starfi og 50% sem forstöðumaður tómstundaheimilis í grunnskóla en fór svo á lögfræðistofu og var þar í 100% starfi. Ég byrjaði að vinna sem frístundaráðgjafi í haust (2011) í 33% vinnu. Mjaka mér aðeins út á vinnumarkaðinn eftir 2,5 árs fjarveru. Ég myndi helst vilja vinna við eitthvað dýratengt t.d í dýragarði, á dýraverndurnarsvæði eða við dýrahjálp (animal rescue). Því miður vantar þessi störf á Ísland. *dæs*
Ég hef fengið tvö brjósklos og heilsan er því heldur ekki nógu áreiðanleg fyrir ýmsa dýravinnu. Ég er líka með mikla kvíðaröskun og hef aldrei farið í felur með það og kynnst mörgu góðu fólki í kjölfar þess, sem ég hefði ekki kynnst ef ég hefði falið það. En ég er mjög opin og hreinskilin að eðlisfari, ég er sú sem ég er og er sátt við það (það tók mig tíma samt) og fer ekki í neinn leikaraskap. Er ekki líka sagt að skref í að leysa vandamál sé að viðurkenna vandamálið ;-)

Ég er mikil rólegheitamanneskja, ekki mikið fyrir að fara á djammið. Ég er meira fyrir rólegheit í heimahúsum. Ég drekk voða sjaldan og lítið, get talið á fingrum annarrar handar hve oft ég hef fundið á mér. Ég reyki ekki, ég hef ekki einu sinni prófað það. Ég er mjög samviskusöm, mæti alltaf þar sem ég á að mæta, og er mjög stundvís. Ég er mjög skipulögð og hef mikla fullkomnunaráráttu sem er bæði gott og slæmt. Ég er frekar mikill einfari en mikið fyrir félagsskap þess á milli. Ég er almennt frekar hress og mikill húmoristi.
Ég uppfærði upp í Linda Rós 2.0 þegar ég fór að takast á við kvíðann og eftir bakaðgerðina þegar ég fór að sjá von um að bakið kæmist í lag uppfærði ég í Linda Rós 3.0. Svo byrjaði ég í ræktinni, mætti 36 sinnum í mars 2011 og fann lífsviljann svo ég er núna orðin útgáfa 4.0. Ég stefni á enn fleiri útgáfur því maður á alltaf að vera að reyna að bæta sig!
Persónuleiki: Samkvæmt persónuleikaprófi Myers Briggs sem er víst mjög viðurkennt próf er ég ISTJ (Introverted, Sensing, Thinking, Judging).
.
Quiet, serious, earn success by thoroughness and dependability. Practical, matter-of-fact, realistic and responsible. Decide logically what should be done and work towards it steadily, regardless of distractions. Take pleasure in making everything orderly and organized – their work, their home, their life. Value traditions and loyalty.
Uppfært 28. mars 2011.
