Brjósklos

Ég hef alltaf lent í vandræðum með hvað er best fyrir mig að gera og hef ekki fengið mikla hjálp, því enginn vill mæla með neinu, sérstaklega læknar og hef ég því mikið þurft að prófa mig áfram. Svo fyrir fólk í sömu stöðu þá ákvað ég að skrifa svona lista.. hann hefði hjálpað mér í gamla daga :-)

Ég tek það þó fram að þetta er það sem ég hef upplifað og hentar mér, sem þýðir alls ekki að það sama henti þér ef þú þjáist af bakverkjum ;)

:: En fyrst smá um mig :-) ::
Ég er með brjósklos (Miðjubungandi diskur L4-L5 L5.S1) sem byrjaði þegar ég var á 16. ári. Ég fór til margra lækna næstu 2-3 árin en ekkert sérstakt fundu þeir að mér, “þetta er klemmd taug” “þetta eru vaxtarverkir” og eitthvað fleira í þeim dúr. Ég var löngu farin að halda að ég væri hreinlega ímyndunarveik þar til einn daginn fór ég til stelpu sem var læknanemi þá, hún sendi mig í sneiðmyndatöku upp í Domus Medica. Þegar ég fór aftur til að fá niðurstöðurnar þá var hún hætt og ég fór til annars læknis í staðinn. Hann skoðaði skýrsluna um mig og sagði “já sendi hún þig í þetta tæki, ég verð að muna að skamma hana fyrir það” Svo skoðaði hann niðurstöðurnar og “ó, kannski hafði hún ekki rangt fyrir sér eftir allt”. En jæja ég gæti sagt fullt um þessa “blessuðu” lækna og fæst gott en ég held ég sleppi því í þetta sinn.

Ég er búin að vera nokkra mánuði frá vinnu og skóla í gegnum tíðina og haustið 2000 fékk ég annað brjósklos sem var verra en hitt. Frá 1996-2000 fékk ég í bakið af og til, sérstaklega við mikla setu og álag en ég átti alveg góða tíma líka, góðu tímarnir voru sennilega fleiri en slæmu tímarnir. Frá 2000-2004 var ég að drepast í bakinu alla daga, ég gat ekki setið mikið, ég þurfti að gleypa mikið af verkjatöflum ef ég ætlaði í bíó, í partý, út að borða, í leikhús, keyra lengi og svo framvegis. Ekki mjög skemmtilegt líf, sérstaklega ef maður er ekki einu sinni orðinn 25 ára. Ég hefði ekki getað unnið nema í mesta lagi hlutastarf þar sem ég hefði getað setið og staðið og hreyft mig til skiptis, en því miður tókst mér ekki að finna neina þannig vinnu á þessum árum svo ég var meira og minna atvinnulaus í 4 ár, þó ég hafi verið í skóla megnið af tímanum og vann hjá mömmu og pabba eitthvað. Vann reyndar í nokkra mánuði á kassa í Hagkaup 2000-2001, en þá var það líka það eina sem ég gerði, kom beint heim eftir vinnudaginn og lá þar til ég mætti í vinnuna aftur.

Bakverkirnir lýstu sér aðallega þannig að ég gat ekki setið mikið, staðið mikið, legið mikið, gengið mikið… s.s ég þurfti eiginlega að búa í svona þyngdarleysi því alveg sama hvernig ég reyndi að skipuleggja daginn með að reyna að gera hæfilega mikið af þessu þá voru helvítis bakverkirnir alltaf þarna, bara misslæmir reyndar.

Það var ekki hægt að skera þetta upp því þetta liggur ekki þannig. Veit ekki hvort það sé gott eða slæmt því á vissan hátt gæti verið gott að vita að hægt væri að laga þetta með að skera þetta upp en margir sem fara einu sinni í aðgerð fara oftar og verður að einskonar vítahring. Þó hægt væri að skera þetta upp þá skilst mér að enginn læknir myndi vilja gera það vegna þess hve ung ég er.

:: Nýjasta nýtt ::
Ég fann talsverðan mun á mér í ágúst 2004 en hvort það var tímanum eða sjúkraþjálfaranum í Hreyfigreiningu að þakka veit ég ekki. En ég gat farið að stunda vinnu og félagslíf og lifað tiltölulega eðlilegu lífi. En þetta entist til apríls 2008. En þá flutti vinnan með tilheyrandi yfirvinnu og burði á hlutum og allt fór í rugl aftur og ég hafði ekki verið jafn slæm í bakinu síðan sennilega ég fékk seinna brjósklosið. Ég hætti að vinna m.a vegna þessa í byrjun árs 2009 og eyddi gífurlegum tíma og pening í að reyna að koma bakinu í lag sem gekk ekki betur en svo að ég endaði á að fara í brjósklosaðgerð í febrúar 2010.

:: En hérna kemur listinn yfir það sem ég hef prufað ::

:: Meðferðir ::

Sjúkraþjálfun (1997, 2000, 2003-2004, 2009)
Ég fór til sjúkraþjálfara sumarið 1997 og aftur haustið 2000 og var ekki ánægð, fann engan mun og var ekkert voðalega ánægð með sjúkraþjálfarana, þeir bara nudduðu mig og eitthvað en ráðlögðu mér ekkert eins og t.d að gera einhverjar æfingar eða fara í göngutúra. En svo fór ég í sjúkraþjálfun í Hreyfigreiningu, (haust 2003 – sumar 2004) og var með daglegar æfingar og átti að fara í lágmark 10 mín göngutúr á dag. Ég fann persónulega ekki mikinn mun en sjúkraþjálfarinn sagðist sjá mun á mér og hann var svo skemmtilegur og hress að ég var svona lengi þar. Svo bara lagaðist bakið á mér heilmikið sumarið 2004 og hefur verið nokkuð gott síðan. Hvort það hafi verið sjúkraþjálfaranum mínum að þakka eða öðru þá sá ég ekki eftir tímanum sem ég eyddi hjá honum og tel líklegt að það hafi hjálpað.

Ég byrjaði hjá baksérfræðingi í maí 2009 sem heitir Eyþór B. Kristjánsson. Hann er víst alger sérfræðingur í háls- og bakvandamálum. Hver tími hjá honum kostar litlar 5000.- kr. Hann sameinar ansi margar stéttir, hann hnykkir, notar nálar, teipar og teygir á ýmsu. Ég kalla þetta 30 mínútna pyndingartíma. Mæli hiklaust með honum. En er að leita mér að nýjum sjúkraþálfara, sem er innan kerfis.

Kírópraktor (2001-2003)
Ég prufaði kírópraktor og líkaði vel. Var hjá honum frá júlí 2001 til apríl 2003 og fann alveg gífurlegan mun á mér fyrst. En svo hætti ég því mér fannst þetta svo dýrt og ekki nógu góður bati. Tíminn kostar 1900 kr og er ekki niðurgreiddur af tryggingastofnun eins og sjúkraþjálfarinn. Engir læknar vildu mæla með eða á móti kírópraktor en vinkona mín benti mér á sinn og ég ákvað að skella mér og mæli alveg með að fólk prufi þetta. Pabbi minn var bakveikur og honum fannst kírópraktor hjálpa sér mjög mikið.

St. Franciskusspítali (2003)
Ég pantaði tíma hjá Jósep Blöndal sem er læknir í Stykkishólmi. Hafði heyrt talað svo vel um hann og ákvað að það sakaði nú ekki að prufa að fara til hans. Ég fékk tíma hjá honum í enda maí 2003 og hann vildi leggja mig inn fyrir sumarlokun bakdeildarinnar. Ég komst inn síðustu 2 vikurnar (10.júní – 20. júní). Ég fór í sprautur hjá honum og var í öllu prógramminu þarna en fann engan mun á mér, eiginlega þvert á móti því bílferðirnar tóku sinn toll og aðgerðaleysið þarna því prógrammið var svo stutt. En margir sem hafa farið þarna hafa fundið stór mun á sér. Þetta bara hentaði greinilega ekki fyrir mig.
Bakdeildin:
Það eru mest 13 inni á bakdeildinni sem er á sérhæð á spítalanum. Eitt fimm manna herbergi og fjögur tveggja manna. Á hæðinni er stofa þar sem er sjónvarp og þar er einnig borðað.
Prógrammið:
2 x sjúkraþjálfun á hverjum degi (fyrri tíminn er McKensie æfingar, seinni almennar bakæfingar)
1 x sundleikfimi á hverjum degi (labba, hoppa o.fl í þeim dúr)
3 slökunartímar á viku
2 klukkutíma fyrirlestrar á viku

Trimform Berglindar (2008)
Ég keypti mér kort í trimform og fór í 7 tíma, átti 3 tíma eftir þegar ég byrjaði í Bowen og hann vildi helst ekki að ég væri í báðu á sama tíma því það gætu seinkað áhrifum Bowen tímanna. Ég hafði nú ætlað mér að kaupa kort aftur til að athuga hvort þetta myndi ekki virka til lengri tíma að styrkja alla vöðvana fyrir bakið en þegar ég hringdi og talaði við þær um hvort ég fengi ekki framlengingu á þessum þremur tímum vegna sérstakra ástæðna (þær vissu um mitt vandamál og að ég væri að reyna allt til að finna lausn á þessu) þá kom það ekki til greina nema að borga aukalega 600 kr fyrir hvern tíma. Þar sem ég fann engan mun á mér eftir þessa tíma þar og fannst þetta mjög ömurlegt af þeim þá ákvað ég að vera ekkert að reyna þetta aftur.

Bowen (2008)
Frænkur mínar fóru tvær í Bowen og önnur pantaði fyrir mig tíma og sendi mig, ég fór í tvo tíma í maí/júní 2008 og fannst ég satt best að segja ekki finna neinn mun á mér og hver tími kostar 5000 kr. Svo ég ákvað að fara ekki í fleiri tíma, en fólk getur prufað þetta.

Svæfingalæknir – Sprautu- og nálastungumeðferð (2008)
Lesandi hér benti mig á Björgvin Óskarsson svæfingalækni sem er með stofu í Suðurveri. Ég fór til hans í 2 sprautu- og nálastungumeðferðir í byrjun júní 2008, sömu vikuna og ég fór til Spánar með tengdafjölskyldunni í tilefni sextugs afmælis tengdamömmu. Ég var farin að labba mjög skakkt því mjöðmin var orðin svo slæm, svaf varla á næturnar, gat ekki setið/staðið/legið/labbað… en var samt ekki komið út í annað brjóskloskast. Ég var eiginlega á því að hætta við ferðina en ákvað að prufa að fara til Björgvins og hann gjörsamlega bjargaði ferðinni. Ég var slæm úti og þurfti alltaf að passa mig en ekkert miðað við hvernig hefði farið ef ég hefði ekki farið til hans. Ég gat setið á veitingahúsum í ágætan tíma, gat verið í bílferðir og fleira. Það hefði ekki verið séns fyrir þessa meðferð. Ég vildi bara óska að ég hefði kynnst honum 12 árum fyrr !! Þetta allavega svínvirkaði fyrir mig. Hver tími kostar 7500.

Hreyfing
Ég reyni að labba mikið og á að vera í líkamsrækt en ég verð að viðurkenna að ég hef verið of löt við það. Var einhverju sinni í World Class í skólaleikfimi og það var alveg með eindæmum leiðinlegt.
Keypti mér kort í Gáska sem margir höfðu talað vel um, ég var ekki ánægð þar, lítil sem engin hjálp í salnum svo ég fór ekki oft. Fór nokkrum sinnum í sund einhvern tíman sem mér fannst hressandi og gott en fékk svo heiftarlega í bakið af að synda bringusund og hef líka verið vöruð við því að það sé ekki gott (Jósep í Stykkishólmi segir að það sé ekki neinstaðar hægt að finna eitthvað sem styður það að bringusund sé slæmt fyrir bakið, svo kannski prufa ég það aftur).

Í júlí 2008 fékk ég mér hund (tík sem fékk nafnið Ronja og er Cavalier) til að hafa félagsskap í gönguferðum mínum, frekar leiðinlegt til lengdar að vera alltaf einn í göngutúrum og maður nennir frekar í göngutúr ef maður hefur góða ástæðu eins og að viðra og vera góður við hundinn sinn ;-)

:: Annað ::

Bakbelti
Ég keypti mér einhverju sinni bakbelti hjá Össur og það virkaði þrælvel.

Hitapokar/kælipokar
Hitapokar eru fínir til að lina sársaukann en samkvæmt kírópraktórnum mínum þá vill hann bara að ég noti kælipoka og ég náttúrulega hlýði honum :-) Kælipokar minnka bólguna við hrygginn en hitapokar ekki. Ég reyndar nota hitapoka talsvert þegar ég er sem verst.

Rúm og annað
Ég fór í Betra bak og keypti mér tempur rúm (sem var of hart fyrir mig og á nú heima upp í sumarbústaðnum okkar), ég sef nú í einhverju boxdýnurúmi sem hentar mér vel. Ég þarf að sofa í mjög mjúku rúmi til að líða vel en pabbi sem þjáðist af brjósklosi líka vildi mikið harðara rúm.

Ég keypti líka tempur kodda sem ég sef með og finnst fínn. En bestu kaupin eru 2 púðar sem ég nota í stólum. Annan keypti ég líklega 2001 og er tempur rúmbakstoð sem ég nota til að setja í stóla (er hætt að nota hann núna). Hinn keypti ég í janúar og er tempur ferðamjóbaksstuðningspúða sem ég hef í stólnum í vinnunni, keypti svo annan til að hafa heima og tek hann með í bílinn þegar ég er að fara í lengri bílferðir eins og í sveitina. Þessir 2 púðar í stólana hafa bjargað mjög miklu, ég hefði ekki komist í gegnum skólann án þessa fyrri og ég get setið klukkustundum lengur án verkja með hinn í vinnunni.

Ecco skór
Ég hef átt Ecco sandala síðan 2000 og úff þeir hafa bjargað lífi mínu, ég fæ heiftarlega í bakið eftir mjög stutta stund í öllum öðrum skóm svo ég geng mestan part ársins í Ecco skóm. Sem betur fer er ég ekki skófrík né voða mikil gella. Tek þægindin fram yfir flottheit (verst að þetta tvennt fer nánast aldrei saman!).

Verkjatöflur
Ég hef verið á Voltaren Rapid, Ibufen, Ibumetin, Dolvipar og Norgesic.
Þar af finnst mér Norgesic áberandi best, er bara nýbúin að fá það en það er víst gefið sem gigtarlyf. Voltaren Rapid er líka alltaf í töskunni minni, ég á það til að verða dálítið þreytt af Norgesic. Svæfingalæknirinn vildi meina að Norgesic og Parkódín Forte væri betra en Voltaren Rapid.

Endurhæfingalífeyrir (2003-2004)
Jósep sagði að ég ætti örugglega rétt á svokölluðum endurhæfingalífeyri svo ég sótti um svoleiðis. Ég sótti um hann í byrjun ágúst og er enn ekki búin að fá svar. Ég þurfti að hitta svona endurhæfingateymi sem samanstóð af lækni, félagsráðgjafa, sjúkraþhttp://lindaros.com/dagbok/wp-admin/page-new.phpjálfara og sálfræðingi. Læknirinn sagði að ég ætti ekki rétt á endurhæfingalífeyri en félagsráðgjafinn og sálfræðingurinn héldu að ég ætti rétt á þeim. Held reyndar að þeim 2 síðarnefndu hafi líka dæmt mig út af andlegu kvillunum því báðum leist ekkert á andlegu hliðina og vildu bæði að ég færi í meðferð hjá sálfræðingi eða geðlækni.
Update: Fékk bréf 15. janúar 2004 um að ég fengi endurhæfingalífeyri í 10 mánuði, frá 1. september síðastliðnum til 30. júní næstkomandi. Mjög hamingjusöm með það þrátt fyrir að hafa þurft að bíða í fimm og hálfan mánuð eftir svari.

2 Responses to “Brjósklos”

  1. Íris

    Ég er ekki með brjósklos en jóga er ótrúlega gott við bakkvillum. Hef heyrt að brjósklos geti gengið til baka við ástundun þess.
    Ég held að yoga Shala (yogashala.is) sé ein besta jógastöðin á Íslandi. Vona að það hjálpi þér.
    Kær kveðja
    -Íris

  2. Linda Rós

    Takk fyrir þetta, ég skoða þetta :-)


Leave a Reply



  • mousetrap car blueprints for free
  • baby muppets for baby showers
  • jobs that relocate to portland
  • tagawagardens.com
  • 1953 nobel peace prize
  • brad harris c s wo
  • bravissimo.com
  • mopar dodge warlock
  • 12 step program list
  • duchess of goya
  • nubian goats dehorn
  • kos kardamena
  • schnepffarms.com
  • american farm bureau ins services
  • bark fitz franchise opportunity
  • 3ds max 4.2 update
  • amt f r migration bern
  • calipeoplemeet.com
  • design for halfway house
  • bartender classes in san diego
  • 16th annual global finance conference
  • sailor moon yuri
  • g sozzi rimini italy 47811
  • icu cams
  • brethren court
  • cheats for zelda snes
  • golfbusinesswire.com
  • burton stuffed elf
  • brushing bass technique
  • a bradley needlepoint south carolina
  • diana gourmet sauces
  • 12 crowns
  • deep fried ravioli
  • 1900 style clothing for women
  • brother of bishop paul morton
  • alaskan malamute siberian husky hybrid
  • 12 inch non-stick saute pan
  • absolutenow denise richards
  • attentive listening
  • bernard pliers
  • mythbusters alcatraz episode
  • afghan chat rooms
  • 50 sweet
  • collaborative discourse gender differences early childhood
  • chaos theory fractal geometry
  • 1995 kit companion 36
  • cassie carter save the bay
  • shemaleladyboytranny.com
  • digital music downloader
  • holy apostles fort worth
  • leia alligator
  • dallas texas paranormal societies
  • mywebsnack.info
  • airport cell phone charging kiosk
  • cosine and tangent curves
  • 1 2 step by ciera
  • naturalbridgecabinrental.com
  • burroughs blading inc
  • penske mesa
  • scharch.com
  • lindt raspberry truffles
  • civil war reenactment locked stocks
  • block paving wimbledon
  • museum smithsonian
  • allison moore blowjobs handjobs cumshots
  • bases for medical discharge from military
  • die educacion
  • 10 signs that he loves me
  • officialgermanshepherdguide.com
  • elektronske vo
  • australias labor prime ministers
  • acappella keep on the sunny side
  • 2007 business sales az
  • afternoon teas in virginia
  • hen party and girl reunions
  • 2x 4 saddle rack
  • 26 foot radon boat
  • brinkmann smoker pot roast recipe
  • components of hindu temples
  • hyatt minneapolis minn
  • 4 ball bowling bags
  • early new jersey motto
  • khans mongolian barbecue restaurant
  • fujitsu 12rlq
  • b b stirling scotland
  • black lizard vinyl fabric
  • antiquing walls
  • extonbiz.com
  • drinking spring water parasites
  • alternative desert trees shrubs
  • lonelyplanet.tv
  • making chapters video mpc
  • dandy net
  • civil war woll nco sash
  • father time mother t wee music
  • audi a6 2.7 catalytic converter
  • funaoka onsen in kyoto
  • ancient chinese embroidered silk robes
  • goddess of tranquility
  • bc ca school requirement for attendance
  • messianic chanukah
  • barry manilow utube
  • cheap lakers tickets
  • embarassing erections
  • hoyel des deux amis
  • genesis sega
  • defiance house
  • cherish family family
  • brindle saginaw
  • darth maul info
  • ada compliant grants
  • blind authority manipulation corporation
  • $1 lip gloss sale
  • access to recovery recovery coach
  • cast of csi episode 10 18
  • polyperformance.com
  • calcium in abdomen
  • miracerros.com
  • 100 ft residential antenna towers
  • backyard clam bake
  • maris fish ranches
  • commercial ku
  • worldslargestpeachcobbler.com
  • 1953 ford anniversay edition
  • albany ny craiglist
  • different colerd kkk robes
  • armenian eggplant caviar
  • 1960-1970 dolls
  • most outrageous funny videos
  • searsportraits.ca
  • dorothea dix hosp butner nc
  • dr weis
  • lesbians pakistani
  • baby acne ears
  • nationalpal.org
  • beachcomber camp ground nj wildwood
  • districtbug.org
  • 280 highway 190 w slidell la
  • 396 chevy crank engine kit
  • ellopos.net
  • alhambra hs suicide
  • bobble trobble igre
  • chuck pierce and the elijah list
  • bk bruton knowles
  • stewart wingate
  • trafalgarreservations.com
  • 106.9 henecan radio san lorenzo honduras
  • 12 volt jumper plugs
  • boots chemist england
  • big sur monastery catholic
  • kentucky derby open pga golfers fined
  • federalist 10 translation
  • carp fisheries for sale
  • el segundo middle school
  • alcoa custom dually wheels
  • adapting cva patients
  • 00 celica trd struts
  • air cadets exercises
  • agriculture robots
  • online transitional pta to pt degree
  • languedoc-france.info
  • clint horner arrested
  • female urethra pic
  • inflamation of the female urethra
  • 2005 cannondale f600 furio