Kvíðaröskun

kisi“Það er ekki hegðun annarra sem raskar ró þinni heldur eigin viðbrögð við þeirri hegðun”

Margir líta niður á fólk með geðsjúkdóma, halda að þetta sé bara ímyndunarveiki og aumingjaskapur og ég geri mér fulla grein að margir sem lesa þetta gagnrýna þetta á slæman hátt. Ég get ekki sagt að ég sé ánægð með það að vita til þess og oft á tíðum hefur mig langað til að taka þetta niður. En svo margir hafa þakkað mér fyrir að vera svona opinská með þetta og hvað það hefur hjálpað þeim. Ég veit það eitt að það sem fékk mig til að leita mér hjálpar var að ég las á heimasíðu stelpu sem ég kannaðist við að hún þjáðist af geðsjúkdómum og ég bara vá kannski er ég ekki bara ímyndurnarveikur aumingji eftir allt og hún er eina ástæða þess að ég safnaði upp kjarki til að leita mér hjálpar. Svo þetta verður hérna áfram, því ef ég get hjálpað einni ráðvilltri manneskju þá er mér nokk sama um alla hina :c)

:: Kvíðaröskun::
Ég þjáist af sjúkdómi sem kallast kvíðaröskun. Ég hef þjáðst af honum svo lengi sem ég man eftir mér en það var ekki fyrr en í febrúar 2002 sem ég ákvað að leita mér hjálpar. Ég var ekki rétt greind samt fyrr en 2009, áður var talið að þetta væri félagsfælni og þunglyndi. En það eru eiginlega bara fylgifiskar kvíðaröskunar.

Ég vonast til að ná stjórn á heilanum einn góðan veðurdag. Sem ég hef aldrei haft eða eins og einn læknirinn minn sagði þá er heilinn bílstjóri rútunnar en ég er farþegi aftast í rútunni og fæ ekki að ráða neinu.

Ég virðist hafa samt komist ágætlega áfram í lífinu þó ég þjáist af þessum sjúkdómi og einn geðlæknanna sagði að það væri ótrúlegt að ég skuli hafa náð svona langt í námi með þennan sjúkdóm. Ætli það sé ekki bara þrjóskunni minni að þakka. Þetta hefur ekki verið auðveld ferð…. En jæja við skulum vona það besta… það geri ég allavega ;-)

Það er ekki eintómir gallar tengdir þessu, ég tel þetta hafa gert mig að betri manneskju. Ég er skipulögð, samviskusöm, tilitsöm, kurteis, hugsa mikið um aðra ofl ofl. sem ég tel hafa komið til af þessu.

:: Í hnotskurn::
Þá finnst mér/hefur mér fundist ég eiga að vera fullkomin; útlitslega, gáfnalega, persónuleikalega… á að kunna allt, geta allt, vita allt og alls ekki gera nein mistök…. ég býst ekki við fullkomnum frá neinum öðrum og dæmi sjálfa mig mikið harðar en nokkra aðra manneskju. Ég á mjög erfitt með að taka ákvarðanir og mjög erfitt með óvissur. Helst myndi ég vilja hafa dagatal og geta flett upp hvenær ég pissa 28. mars 2060 ;-) (kannski ekki alveg en næstum).

Þetta hefur háð mér mikið í lífinu, ég hef t.d aldrei farið í snúsnú og þið getið rétt ímyndað ykkur framhaldið. Ég hef s.s alltaf haft áhyggjur af hvað öðrum fyndist um mig og ekki viljað gera neitt sem ég kynni ekki fyrir framan aðra. Ég hef líka alltaf verið mjög meðvirk.

:: Geðdeild Landspítalans ::
Í janúar 2009 fór ég upp á geðdeild að ráði heimilislæknis og hef verið í sálfræðimeðferð þar hjá æðislegum sálfræðingi sem heitir Sólveig Erna Jónsdóttir, ég er svo líka hjá geðlækni sem heitir Óttar Guðmundsson.

:: Lyf ::
Ég hef verið á ýmsum lyfjum en hætt á þeim öllum á endanum því mér finnst þau ekki hafa nein áhrif nema þá í mjög takmarkaðan tíma (ég hef m.a verið á Cipramil, Cipralex, Zoloft, Seroxat, Wellbutrin Retard, Amilín, Efexor Depot)

:: Í dag (október 2009) ::
Í dag finn ég mikinn mun á mér, ég er búin að vera í hugrænni atferlismeðferð megnið af árinu og er núna að ljúka 8 vikna námskeiði upp á geðdeild sem heitir Hópmeðferð við kvíða – breytt hugarfar – að breyta og að sættast. Námskeiðið skiptist í tvennt, fyrstu 4 vikurnar er farið í svokallaða árvekni* (mindfulness) og hinar 4 í hugræna atferlismeðferð** (cognitive therapy). Mér fannst árveknin gífurlega gagnleg. Mæli eindregið með þessu námskeiði.

Ég er komin með meira sjálfstraust, ég er hætt að hafa jafn gífurlegar áhyggjur af hvað öðrum finnst (er alveg farin að lifa eftir “það er ekki hegðun annarra sem raskar ró þinni, heldur eigin viðbrögð við þeirri hegðun”. Með árvekninni og öndunaræfingum er heilinn á mér orðinn rólegri.

Ég held mér hafi bara aldrei liðið svona vel eins og síðustu ca 3 vikurnar, ég er samt engan vegin komin á leiðarenda, langt, langt, langt frá því og þetta verður náttúrulega eitthvað sem ég þarf að vinna í alla ævi en ég er allavega á góðri leið. En þetta er eins og sagt er um margt, 3 skref áfram og 2 aftur á bak.

Ég er líka farin að gera hluti sem ég hefði aldrei gert áður og er að reyna að lifa eftir “prufa allt einu sinni” og láta bara vaða. Ég tala þá um mig sem “nýja Lindan”.

Ég hvet alla sem hafa stungið hausnum ofan í jörðina og haldið honum þar að rífa sig upp og vinna í sínum málum, það er erfitt, en það mun ALLTAF borga sig.

:: Samband við mig::
Ef ykkur langar eitthvað til að tala við mig um þetta eða eitthvað annað þá getið þið t.d bætt mér við á msn (kisustelpa(att)gmail(punktur)com) eða á facebook ;-) Verið alveg ófeimin við það.

:: The Worry Cure ::
Ég er að lesa kafla úr bók sem heitir The Worry Cure, er ekki komin langt en í byrjun er m.a verið að finna út hvernig þú getur kennt manneskju að hafa áhyggjur.

The Seven Rules of Highly Worried People
1.If something bad could happen—if you can simply imagine it—then it’s your responsibility to worry about it.
2. Don’t accept any uncertainty—you need to know for sure.
3. Treat all of your negative thoughts as if they are really true.
4. Anything bad that could happen is a reflection of who you are as a person.
5. Failure is unacceptable.
6. Get rid of any negative feelings immediately.
7. Treat everything like an emergency.

Sjá kafla úr bók

Þetta á allt mjög vel við mig eiginlega, finnst þetta frábær bók til að lesa.

——————-

* Árvekni
Áttu erfitt með að slaka á? Ertu oft að hugsa um margt í einu? Ef þú vilt auka hæfni þína í að festa hugann við það sem þú ert að gera í hvert og eitt skipti er ,,mindfulness” eitthvað fyrir þig! Mindfulness eða vakandi nærvera er leið til að dvelja í núinu í vinsemd og sátt við sjálfan sig, finna og njóta. Mindfulness er hægt að þjálfa með meðvitaðri slökun þar sem við stöldrum við og skoðum hugsanir okkar, skynjun og líðan. Við forðumst að meta, greina, flokka og dæma. Við samþykkjum okkur sjálf. Mindfulness hefur reynst gefa ótrúlega góðan árangur til sjálfsþekkingar og vellíðunar. Rannsóknir sýna einnig að mindfulness getur aukið lífsgæði og lífshamingju, veitt betri heilsu og jafnvel lengra líf.

** Hugræn atferlismeðferð
Hugræn atferlismeðferð (HAM) byggir á að skilja hvernig hugsanir hafa áhrif á atburði í lífi okkar, þ.e hvernig við túlkum eða metum þessa atburði. Samkv. HAM er það ákveðið hugsanamynstur sem hefur áhrif á tilfinningar okkar og hegðun. Með því að skilja þetta samspil er betur hægt að leiðrétta hugsanir sem valda okkur vanlíðan og mynda nýtt hugsanamynstur sem hentar okkur betur. HAM er yfirleitt skammtímameðferð þó að lengri meðferð sé nauðsynleg fyrir langvinnari vandamál. HAM hefur reynst vel gegn ákveðnum vandamálum, t.d. þunglyndi og kvíða en er einmitt einnig hagnýt fyrir þau vandamál sem þú spyrð um

7 Responses to “Kvíðaröskun”

  1. Sæl Linda Rós ég rataði hingað inn á þessa síðu hjá þér nánast fyrir tilviljun og er búin að fræðast aðeins um þig og langar að segja að þú ert mjög virk og dugleg manneskja og sjaldan hef ég lesið eithvað sem er jafn opið og skemtilega sett upp, ég tel og er auðséð mál að ljósið skín hjá og með þér. Góðir hlutir gerast hægt og gerast með trú og ástundun og vil ég segja við þig gangi þér vel með allt þitt. Kveðja Styrmir

  2. Linda Rós

    Takk kærlega fyrir Styrmir :-)

  3. Pálmi

    Sæl Linda,
    ég rataði ekki hingað fyrir tilviljun :P
    Gaman að lesa textann þinn, bið að heilsa Ronju.

    p.s. ég get líka njósnað
    :)

  4. Valdís

    Frábær síða, ég er sjálf að takast á við kvíða og hef verið að síðan ég man eftir mér en það uppgvötvaðist ekki fyrr en ég var 26 ára fyrir 3 árum síðan. Allt sem þú skrifar hér kannast ég svo vel við, en sem betur fer er allt á batavegi hjá mér, fór til sálfræðings og fór á lyf sem virka á mig, þó langar mig til að hætta á þeim einhverntíman, minnka sennilega skamtinn niður í hálfa töflu til að byrja með.
    Í dag er líf mitt ósambærilegt því sem það var, ég lifi í núinu, ég fæ mjög sjaldan kvíðahnútinn í magann sem ég fékk oft á dag, hugsanirnar eru ekki eins öfgafullar, hræðist ekki tilhugsun um próf og þar með gengur mér mun betur í prófunum, og neiðist ekki til að taka alltaf sjúkrapróf eins og ég gerði alltaf hér áður fyrr, vegna ælupestanna sem ég fékk alltaf í prófatíð. Lífið getur orðið yndislegt ef maður leitar sér hjálpar!

  5. Valdís

    Verð að fá að bæta þessu við

    My Garden
    by C.B.

    Deep inside of me there is a garden, full of many seeds. Three very special seeds have names. Those names are Confidence, Calmness and Contentment.

    I was born with these seeds, but when I was young the garden was not tended to, and the seeds of ugly weeds began to take over Confidence, Calmness, and Contentment. As I grew older, I thought that the weeds had taken over the garden for good, and that Confidence, Calmness, and Contentment were killed.

    Gone forever.

    What I didn’t know was that the little seeds, no matter how many times they were stepped on or neglected, were the strongest seeds in the garden. They were alive, only lying dormant, for many years. For when I began tending the garden myself by nurturing the seeds with the love and respect that they deserved – small, yet strong, lovely sprouts began to grow.

    Someday soon they will chase away the weeds and become the most beautiful flowers in my garden.

    Eventually, they will drop other seeds into the fertile soil and they too will grow strong with lovely flowers, with names like Hope, Pride, Peace, and Dignity.

    Nobody will be able to walk on my garden again — I won’t let them!

    For I know that every human being has the right to grow a beautiful garden inside of them.

  6. Lisa

    Takk fyrir að skrifa um þetta.

  7. Villi

    Guð blessi þig, held þessi síða mun hjálpa mörgum.


Leave a Reply



magazine103

honda32

hotel140

hotel138

health136

leather82

garcia35

marina228

mania167

gallery6

betonline.com

house214

illinois26

jelly61

locator224

ibanez13

graphic175

laser45

guitar57

information113

lyric55

lyric70

illinois27

lyrics203

jacket7

health138

louis14

green201

light139

foundation144

harvey116

history199

league74

image33

jackie11

lyrics191

factory114

melfosteronline.org

holding230

taxhelpattorney.com

market241

israel244

johnny108

international185

lyric99

generator66

harmony104

jerry75

marathon208

japanese47

festival190

hotel138

glass119

linda168

lyrics119

health132

ireland216

lyric49

guide28

firmware249

leader73

grand164

lyrics163

marketing246

example61

insurance160

hotel92

engineerjobs.com

lyrics183

fight207

hospital59

lyrics165

lincoln165

finance231

canyontours.us

lighting150

manual193

leather80

ignition20

husband4

international177

lyrics67

hotel165

institute133

ipers.org

kansas159

shayleetaylor.com

lowrance30

beckettpedia.com

fairy123

jones124

golden135

fighter210

guide27

mario236

lyrics229

firewall243

houston229

marcus215

festival181

house206

listing193

larry42

manchester160

house206

guest11

marcus215

hospital57

estate33

london249

lyrics182

harvard115

marantz207

malta148

funeral203

hills193

glider124

lyrics56

verfrisser.net

lyrics41

fields205

cleanjokes.net

herbal181

james31

letter112

marie223

marine232

lyric110

fashion157

hipaaexplained.com

legend93

kicker213

little200

justin153

raykomkacoins.com

hockey226

horse45

indianapolis84

guitar46

kocorner.com

kennedy187

guide32

marina228

florist64

lyrics0

language27

japan42

making134

larry41

yellowjersey.org

force96

archibase.net

general59

forest102

lyrics173

international183

dodsbir.net

football95

cornellbigred.com

island231

louis15

yourmedicaldetective.com

garcia35

manager159

lathe54

lyrics125

lawrence64

lyrics41

lumber36

hotel118

lyric88

heart142

marathon209

lodge231

language23

loveandhugz.com

hotel161

javascript54

example63

hawaiian121

honey36

machine76

forest103

fhatraining.org

house213

legacy89

lyrics133

house188

estate35

lexus126

instructions142

hotel93

international175

fabric104

guest12

hotel128

julie147

irvine221

learn77

jerry74

guide21

joseph133

latin57

island226

gallery12

nylonplace.com

hospital55

google141

jacket5

estate3

grand158

lyric63

frank170

webkinzreality.com

grain156

lyrics120

groups248

indians85

hotel146

maple205

keygen206

imperial39

lyrics196

group243

fresh186

harley100

johnny110

james29

northcarolinajobs.net

lyrics19

javascript53

houston221

login237

jungle150

green197

leather84

lyrics161

manchester160

industry98

manga165

exercises78

grand162

eroticdream.eu

hernia183

centuryheli.com

lyrics225

leather85

logos240

bmifcu.org

ligament138

happy94

guitar58

friends190

houston221

musclefoxes.com

management150

gallery2

jacksonville16

lyrics124

linux183

lyric45

library133

final228

hockey220

green202

dart.jobs

german85

kevin203

garage34

europe51

radrowdies.com

language33

lottery9

lyrics226

florence45

joseph132

lyric71

james26

lyric40

estate17

holdings231

marketing245

karaoke162

graham155

lyrics56

hotel148

international185

houston229

virgin100.com

lyric91

female172

manual184

lanka35

valleycoin.com

event55

florida61

florida46

barrysbootcamp.com

guest14

hospital55

kelly185

friend188

horse50

lyrics130

katie169

father161

owenscorningblog.com

investment210

house208

greeting208

lyrics187

jersey76

kevin202

license137

front192

groups245

jeans55

house184

hotel163

johnny110

surprisedbyford.com

hotel98

lyric76

guide28

generator65

illinois26

jones128

login238

hotel86

lamps13

lyric55

great184

jones124

festival191

cornwallwildlifetrust.org.uk