Við Berglind fórum í sund eftir Laugar í gær. Þegar við fórum út þá var handklæði í hurðinni svo hún myndi ekki lokast en þegar við komum tilbaka þá var búið að taka handklæðið og við þurftum að tjónka við augnskannann til að komast inn, ég segi tjónka því það hefur aldrei gerst að hann hafi samþykkt mig (né Berglindi) í fyrstu tilraun. Ég sagði á facebook að ég hlakkaði aldeilis til að standa þarna úti í 10 stiga frosti að tjónka við augnskannann !
En Hlynur vinur minn kom í heimsókn í gær og hann sagði mér að það væri hægt að ganga alveg að innilauginni og fara út þar ! Alger snillingur. Við Berglind reyndum þetta í morgun og voru ansi ánægðar með hann Hlyn. Ég sagðist ætla að kyssa hann næst þegar ég sæi hann !
En hann segist líka alltaf komst inn í fyrstu tilraun, hann á skilið flengingu fyrir það !
Ég fór út í búð og keypti mér 10 banana í dag, ég er enn að lifa á banönum, tekexi og kjúklingi. Ég fór í apótek og hún mælti með að ég færi til læknis út af þessu. Ég er eitthvað búin að vera að þrjóskast við, vonast til að þetta líði bara hjá, ég ætla að athuga málið á mánudaginn.
Ég fór svo í sund í Árbæjarlaugina með nágranna mínum Hauki og Betu dóttur hans. Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef komið í þá laugina, við höfðum það bara náðugt í heitum potti, lágum þar bara. Þetta er í annað sinn á ævinni held ég sem ég fer í sund án þess að synda. Ég var svo hrædd um að brenna, svo ég keypti mér barnasólarvörn með extra vatnsvörn. Ég slapp alveg, er alveg jafn hvít núna og í morgun.
Eftir sundið fór ég og náði í Krúa Thai fyrir okkur, Haukur hafði áhyggjur af þessu matarræði mínu og vildi endilega að við myndum borða eitthvað, hann stakk upp á pizzu en mér leist ekki á það út af maganum. Þetta fór bara vel ofan í mig, kannski er ég að lagast. Við gláptum svo á smá golf, svo City of Ember og spiluðum 6 umferðir af Spurt að leikslokum. Haukur hefur nú alltaf unnið mig eiginlega en ég vann 3, hann 2 og jafntefli 1 sinni. Jeij ! :-) Annars er ég svo furðuleg, mér er eiginlega alveg sama hvort ég vinni eða tapi, mér finnst bara svo gaman að spila :-) Við mundum í eitt skiptið ekki hver ætti að vinna svo við fórum í steinn, blað, skæri og gerðum eins í fyrstu tvö skiptin, frekar fyndið.
Þetta var góður dagur, gott að dreifa huganum þó ég hugsi meira og minna um Garp allan daginn…
Maður sér svo vel eðli fólks þegar maður lendir í svona erfiðleikum. Hverjir reynast manni vel og hverjir ekki. Fólk hættir aldrei að koma mér á óvart, ég hefði aldrei trúað að ég myndi eyða síðustu 3 dögum með nágrönnum mínum.
Ég vaknaði fyrst um 5 en tókst að dotta til 7, en þá fór ég á fætur, svaf mjög illa og lítið þessa nótt. Ég átti pantaðan tíma í ræktinni, strákur sem ég þekki sem er einkaþjálfari var svo yndislegur að bjóðast til að sýna mér á öll tækin og tólin. Ég gat ekki farið að beila á honum svo ég mætti þó ég gæti eiginlega ekki hugsað mér það. Var bara heima grátandi í sófanum…
En þetta var fínt, þetta dreifði huganum vel, þó ég hafi sennilega litið hræðilega út, öll grátbólgin, ég reyndi nú að púðra yfir það versta en svo svitnaði það nú allt í burtu. Hann kenndi mér á fullt, margt sem ég hafði ekki fattað og hann ætlar að senda mér smá prógram, ég er bara spennt ! Ég sýndi honum svo hvað ég væri liðug (ég er eins og níræð kelling) og hann ætlaði ekki að trúa þessu svo hann ákvað í endann að teygja vel á hjá mér og ég var ekki viss hvort ég vildi öskra, gráta, bíta hann eða lemja hann. Ég er svo sem vön svona en þetta er alltaf jafn andskoti vont. Ég væri nú alveg til í svona á hverjum degi samt, myndi hjálpa mér að liðkast. Ég á svo gjafakort í alnudd í Laugum og hann er einmitt nuddari þar. Fyndist samt hálf skrýtið að fara í nudd til hans, ég sé til !
Ég fór svo og heimsótti einn nágranna minn hana Evu, fékk lánaða hleðslusnúru fyrir símann minn því kettlingarnir komust inn í svefnherbergi í smá stund og voru ekki lengi að bíta mína í sundur, ég hef alltaf lokað þar inn en það var opið þangað þegar ég kom að Garpi og ég var of upptekin í grátsjokki sitjandi á gólfinu til að pæla í því. Ég var þar dágóða stund, hún er yndisleg manneskja og ég veit ekki hvað ég hefði gert án hennar síðustu daga. Hún bauð mér að koma með sér og vinum sínum í sumarbústað, ég íhugaði það en ég var bara ekki í neinu ástandi til þess, var svefnvana og of langt niðri til að geta verið skemmtilegur félagsskapur í bústaðaferð.
Í staðinn kom annar nágranni minn í heimsókn með dóttur sína til að skoða kettlingana, ég lagði mig svo í smá stund og fór yfir til hans. Við fórum með börnin/dýrin okkar í göngutúr um hverfið, stoppuðum á róló. Komum svo heim og horfðum á einn Firefly þátt og spiluðum svo 4 umferðir að Spurt að leikslokum. Ég tapaði öllum ! Sem betur fer er ég ekki tapsár. Ég stóð mig líka nokkrum sinnum að því að segja pass í staðinn fyrir að giska á eitthvað sem ég hélt að væri vitlaust en var svo rétt. Þarf að breyta því !
Ég hef aldrei átt svona góða nágranna, mér líður dálítið eins og ég sé stödd í Ramsey Street í Neighbours !
Ég kom svo heim upp úr 1 og fór að sofa og svaf alveg ágætlega til um 10.
Ég fór í ræktina í morgun og hitti þar Berglindi og Sigrúnu og við fórum í Hot Yoga. Ég var alls ekki sannfærð fyrir fram, hélt að þetta myndi verða alltof heitt og svo er ég svo stíf að ég er hrikalega í jóga. Berglind og Sigrún voru mjög ánægðar að hafa mig á milli sín, spýtukallinn Lindu ;-) Ég ætla pottþétt aftur. Hitinn var ekkert gífurlegur, en maður svitnaði náttúrulega hrikalega mikið.
Vá harðsperrur ! Ég er með harðsperrur allstaðar ! Meira að segja í rassinum og maganum ! Ég svaf varla í nótt.
Við Berglind mættum í hádeginu og fórum í tíma sem heitir Kviður og bak, 30 mínútna tími. Hann var fínn, mjög mikil áhersla á magann, maginn var næstum farinn að krampa undan álaginu ! En mér fannst tíminn í gær betri. Fjólhæfari og skemmtilegri, enda hef ég held ég ekki haft svona svakalegar harðsperrur áður og á svona mörgum stöðum. Við fórum svo á bretti í 30 mínútur og á stigavél í 5 mínútur. Það er voða sniðugt að mæta þegar það er eitthvað í sjónvarpinu til að horfa á.
Ég ætlaði svo í fjallgöngu en hætti við því það kom svo mikil demba. Mér finnst allt í lagi að ganga í rigningu en fyrr má nú fyrrvera.
Maginn á mér er enn í uppreisn, í gær borðaði ég bara banana og tekex, í dag ákvað ég að fá mér skyrboozt sem ég er búin að vera að fá mér nánast daglega í margar vikur en maginn á mér er greinilega ekki að höndla svona miklar mjólkurvörur (ég ældi eftir skyrboozt á föstudaginn og hef ekki lagt í það síðan) því ég fór bara upp í rúm og í fósturstellinguna. Er rétt að byrja að jafna mig núna, nokkrum klukkustundum síðar.
Afmælisdagur pabba er á miðvikudaginn, ég hef mjög mikið verið að hugsa um hann síðustu daga. Þetta verður 6. afmælisdagurinn síðan hann dó, hann hefði orði 57 ára í ár. Lægðin er örugglega aðeins út af þessu. Ég er samt að ná mér upp úr henni. En ég hef verið frekar viðkvæm og átt það til að tárast, sérstaklega þegar ég hugsa um pabba. Mér finnst vera svo óendanlega langt síðan hann var á lífi og sakna hans svo mikið…
Mér finnst sérstaklega sorglegt að það voru alltaf til videóupptökuvélar á heimilinu því pabbi var frekar mikill tækjakall en hann var alltaf fyrir aftan vélina svo í mesta lagi heyrist bara í honum… og líka að ef ég eignast börn að þá munu þau aldrei kynnast hve æðislegur pabbi var og hve æðislegur afi hann var.
Pabbi og Alexander sonur brósa:

Ég vaknaði um 7 í morgun, fór út úr húsi um hálftíma seinna til að ná í tvo starfskrafta fyrir mömmu og skutla í sjoppuna. Ég vissi ekki hvað ég væri lengi í sveitinni svo ég tók Ronju með. Vanalega vælir hún niður alla stigana því hún er svo spennt að fara í göngutúr, ég stundum held á henni niður svo hún væli ekki (sérstaklega þegar ég er að fara í göngutúra í kringum miðnætti). En ég var með mikið drasl í morgun og gat það ekki og var frekar stressuð um að hún myndi væla mikið og vekja nágrannana. En viti menn, ekki múkk ! Það hefur alltaf verið ljóst að Ronja mín er ekki sérlega morgunhress en það var alveg augljóst í morgun ;-)
Ég fór í ræktina aftur í dag. Þriðji dagurinn í röð *klappa sjálfri sér á bakið*. Við Berglind mættum og fórum í tíma sem heitir Styrkur og er 60 mínútur. Mér fannst þetta góður tími, þjálfar ansi marga vöðva, ég var titrandi á köflum ! Ég var samt að gera margar æfingarnar vitlausar og Berglind var dugleg að segja mér til, mér finnst að þegar það eru byrjendur í salnum að það ætti að fylgjast með að þeir séu að gera hlutina rétt.
Eftir tímann fórum við á bretti í 30 mínútur, ég gekk í halla 10, minnkaði hallann í um 3 mínútur samt einhvern tíman. Fórum svo á stigavélina í 5 mínútur. Ég var svo sveitt að það lak af mér ! Það er sorglega léleg loftkæling þarna. Ég bjóst við því að þegar maður mætir og gengur inn í salinn að það myndi mæta manni kaldur gustur en það er bara stofuhiti þarna, örugglega gott betur en það.
Ég hitti svo Björk og sagði henni hvað ég hefði verið að gera, hún var með Tabata tíma og hún horfði á mig og spurði hvort ég ætlaði líka í tíma til hennar. En ég sagði að það væri nú komið gott, ég myndi fara seinna, ég held að tímarnir hennar séu viss geðveiki, þó hún neiti því ;-)
Svo á leiðinni í búningsklefann hitti ég gaurinn sem ætlar að taka mig í tækjakennslu, það verður áhugavert, ég er svo mikill klaufi á svona tæki og að beita mér rétt !
Er komin heim ! Víííííí !
Hún er búin að vera í Kína í ár og verið mikið saknað ! Það er oft hægt að plata Önnu frænku til að gera skemmtilega hluti sem enginn annar vill gera með mér ! Sbr. hláturjóga í Viðey í fyrra ! og og og og svo eru það fjölskylduferðirnar sem við Anna frænka fórum með “dætrum” okkar í fyrra !
Velkomin heim frænka ! :*
Ég gaf kettlingunum smá kjúkling í gær, þeir voru ekkert smá hrifnir. Gaf þeim svo aðeins meira í dag (það er svona að vera einn á heimili og elda sér heilan kjúkling á föstudegi og eiga helminginn eftir á sunnudegi) og það vakti enn meiri kátínu. Ég gaf Garpi og Ronja ætlaði sko að ná í bitann af honum, hann hélt nú ekki, hvæsti og sló til Ronju ! Þetta gerðist alveg nokkrum sinnum. Ekkert smá fyndið.