Archive for category Göngur

Göngubúnaður

Posted by Linda Rós on Saturday, 13 March, 2010

Ég þarf að græja mig upp fyrir sumarið, þyrfti að finna vana útivistarmanneskju til að fara með mér í búðir.

Mig vantar:
Gönguskó
Göngubuxur
Gönguföt (boli, jakka ofl)
Ferðakíki

Mig langar rosalega í:
GPS tæki (eða skrefmæli til að byrja með, gaman að vita hvað maður er að labba langt og hvað lengi)

Göngutúr í Búrfellsgjá

Posted by Linda Rós on Saturday, 13 March, 2010

Búrfellsgjá
11. mars 2010
Göngufélagi: Ívar og Ronja

Mjög falleg og skemmtileg leið og lítið af fólki (fyrir utan risa stóran hóp sem átti leið þarna um). Ég hafði smá áhyggjur af að þetta yrði álag fyrir bakið en það var alveg í lagi, aftur á móti var löppin að trufla mig talsvert, enn smá doði í henni en það hefur ekki verið að trufla mig lengi enda ekkert verið að ganga á ósléttu. Þarf líka að græja betri skó held ég.

En það var yndislegt að komast loksins í alvöru göngu, í góðu veðri og góðum félagsskap :-)

burfellsgja

Göngutúr í Laugardalnum

Posted by Linda Rós on Wednesday, 28 October, 2009

Ég fór í göngutúr í Laugardalnum í gærkvöldi, engin myndavél með í för enda orðið dimmt. Þetta var líka göngu”deit” með gaur sem ég hafði aldrei hitt, ég sagði nú við hann þegar við hittumst að það væri hálf creepy að bjóða stelpu á fyrsta deit að kvöldlagi í Laugardalnum !

Ég hef aldrei labbað þarna um áður og það eru mörg mörg ár síðan ég hef farið í Húsdýragarðinn og Grasagarðinn, hvað þá í Skautahöllina en ég hef bara einu sinni farið á skauta. Þarf að bæta úr því öllu !

Ronja var alveg voða hress og kát, hundarítalínið sem ég byrjaði að gefa henni fyrir 2 dögum eru greinilega ekki farin að virka, mætti 2 gaurum sem sögðu “vá sérðu hundinn, hann labbar á afturfótunum” og svo seinna mætti ég þeim aftur og þá heyrðist “sjáðu, þetta er hundurinn sem labbar á afturfótunum”. Þótti greinilega mjög spes ;-) Mættum líka 3 stelpum og ein spurði hvort hún mætti klappa Ronju og á endanum var hún bara lögst á gangstéttina með Ronju ofan á sér, alveg að fíla sig í tætlur.

Ég stoppaði svo á McDonalds á leiðinni heim og lenti í mestu bílabiðröð allra tíma en ég lét mig nú hafa það, kveðja McDonalds sem hefur verið tryggur vinur minn síðustu 2 mánuðina eða svo ;-)

Öskjuhlíð – stríðsminjar

Posted by Linda Rós on Sunday, 30 August, 2009

Ég fór í göngutúr í Öskjuhlíðina í dag, að skoða stríðsminjarnar sem ég hreinlega vissi ekki að væru þar, gleymdi náttúrulega að taka með mér myndavélina! Hlynur var alveg að fíla sig í kennarahlutverkinu, mér leið á tíma eins og ég væri komin í grunnskóla aftur, bara gaman af því ;-)

Í borgarlandinu hafa stríðsminjar helst varðveist í Öskjuhlíð og á Reykjavíkurflugvelli sem nær yfir Vatns- og Seljamýri. Af varnarviðbúnaðinum á Öskjuhlíðinni eru meðal annars steypt skotbyrgi, stjórnbyrgi, víggrafir úr torfi og grjóti, loftvarnarbyrgi, varnarveggir fyrir eldsneytistanka, neðanjarðarvatnstankar, bryggjustubbur, veganet, fjöldi gólfa og grunna undan bröggum og öðrum byggingum og akstursbrautir fyrir flugvélar.

Hellaferð#2 Gjábakkahellir

Posted by Linda Rós on Sunday, 9 August, 2009

Gjábakkahellir
9. ágúst 2009
Göngufélagi: Hlynur
Um: Frekar léttur og stuttur hellir, held við höfum verið um hálftíma kannski að fara í gegnum hann.

gjabakkahellir

Hellaferð#1 Raufarhólshellir

Posted by Linda Rós on Friday, 7 August, 2009

Raufarhólshellir
6. ágúst 2009
Göngufélagi: Hlynur
Um: Tekur um 2 klst að fara alla leið inn og út aftur. Mér fannst gangan ekkert erfið, maður er samt að klöngrast í steinum allan tímann. Innst inni í hellinum er gestabók. Það var rosalegur raki þarna inni, eins og það væri úði. Enda varla þurr spjör á manni þegar maður kom út. Svo við fórum í sund á Selfossi (fór í rennibrautina, gufuna og pottana, held þetta sé í fyrsta skipti sem ég fer í sundlaug án þess að fara í aðallaugina og synda nokkrar ferðir) og skipt um öll föt eftir það. Mæli pottþétt með þessum helli (nauðsynlegt að hafa höfuðljós og gott að hafa vettlinga).

raufarholshellir

Hláturjóga í Viðey

Posted by Linda Rós on Wednesday, 22 July, 2009

Við Anna frænka fórum í hláturjóga í Viðey í gær, það var mjög fínt. Örugglega mjög skemmtilegt að stunda þetta, að læra að losa allar hömlur og vera bara eins og fífl :-)

Þriðjudagsganga í Viðey 21. júlí 2009
Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari

Þriðjudaginn 21.júlí mun Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari leiða gesti þriðjudagsgöngunnar í Viðey. Ásta hefur að undanförnu vakið athygli fyrir námskeið í hláturjóga sem eiga vaxandi vinsældum að fagna. Í þriðjudagsgöngunni verður gengið á vit fallegrar náttúru Viðeyjar og á áningarstöðum gerðar hláturjógaæfingar. Þetta ætti að geta orðið stórskemmtileg og hressandi ferð fyrir alla fjölskylduna enda fátt betra en að njóta íslenskrar náttúru í góðu veðri, -skellihlæjandi.

Siglt er frá Skarfabakka kl. 19:15 og er miðað við að gangan taki um tvær klukkustundir. Gjald í ferjuna kr.1000.- fyrir fullorðna, kr.500.- fyrir 6-18 ára og frítt fyrir börn undir 6 ára aldri.

Nánari upplýsingar um áætlun og verð má finna á www.elding.is og www.videy.com

Leiðsögnin og námskeiðið eru ókeypis og öllum heimil og fá allir þátttakendur gefinn Kristal frá Ölgerðinni.

Ég ætla svo að fara aftur í Viðey í sumar og labba alla eyjuna :-)

videy

Fjallganga#5 Esjan

Posted by Linda Rós on Monday, 20 July, 2009

Esjan
20. júlí 2009
Göngufélagi: Ronja og Berglind
Um: Tiltölulega auðveld ganga upp að steini, frekar erfið eftir það

esjan

lindaberglind

Fjallganga#4 Ármannsfell

Posted by Linda Rós on Monday, 6 July, 2009

Ármannsfell
5. júlí 2009
Göngufélagi: Ronja
Um: Þetta er ekki mjög erfið ganga og mjög skemmtileg, frábært útsýni.

Síðan ég var bara krakki hefur mig langað til að ganga upp á Ármannsfell en aldrei látið verða af því. Alltaf haldið að þetta væri of erfitt, að ég myndi ekkert komast þarna og alltaf verið vandamál að fá einhvern með og svo framvegis.

Nýja Lindan hætti þessu bara og gekk upp á fjallið ein í gær (eða tja með Ronju). Fór upp mjög greiðfæra og skemmtilega leið en vildi finna aðra niður og lenti í smá vanda, valdi mjög svo ógreiðfæra leið og var ansi hrædd um útlimi á tímabili en það gerir gönguna bara eftirminnanlegri.

Annars held ég að í svona fjallgöngum sé nú sniðugra að hafa einhvern með sér en betra að fara einn en ekki !

Ármannsfell:
armannsfell

aarmannsfelli

Fjallganga#3 Arnarfell

Posted by Linda Rós on Wednesday, 24 June, 2009

Arnarfell
24. júní 2009
Göngufélagi: Ronja og Snjólaug
Um: Tiltölulega auðveld ganga og einn fallegasti staður landsins

ArnarfellSnolla