Ármannsfell
5. júlí 2009
Göngufélagi: Ronja
Um: Þetta er ekki mjög erfið ganga og mjög skemmtileg, frábært útsýni.
Síðan ég var bara krakki hefur mig langað til að ganga upp á Ármannsfell en aldrei látið verða af því. Alltaf haldið að þetta væri of erfitt, að ég myndi ekkert komast þarna og alltaf verið vandamál að fá einhvern með og svo framvegis.
Nýja Lindan hætti þessu bara og gekk upp á fjallið ein í gær (eða tja með Ronju). Fór upp mjög greiðfæra og skemmtilega leið en vildi finna aðra niður og lenti í smá vanda, valdi mjög svo ógreiðfæra leið og var ansi hrædd um útlimi á tímabili en það gerir gönguna bara eftirminnanlegri.
Annars held ég að í svona fjallgöngum sé nú sniðugra að hafa einhvern með sér en betra að fara einn en ekki !
Ármannsfell:


Arnarfell
24. júní 2009
Göngufélagi: Ronja og Snjólaug
Um: Tiltölulega auðveld ganga og einn fallegasti staður landsins

Ég er búin að vera óvenju hress með lífið upp á síðkastið. Með Ronju mína og 2 litlar kisur er varla annað hægt ;-) Þær eru einmitt kúrandi hjá mér núna. Ég var með Berglindi vinkonu í göngutúr og hún kom með Cavalier hund sem heitir Amos/Mosi og þau Ronja léku sér lengi saman, fórum svo í göngutúr og hún varð ansi skítug og var böðuð og er þurrkun núna, annars væri hún kúrandi hérna með okkur.
Síðasta dag fór ég í göngutúr um daginn með gömlum vini mínum og um kvöldið með nýjum vini og svona eiga dagarnir að vera. Út í náttúrunni í góðum félagsskap !
Núna er ég að fara að kaupa bókina Íslensk fjöll og jafnvel Hellahandbókina og kannski einhverjar fleiri ef ég dett niður á einhverjar góðar bækur, einhverjar uppástungur ?
Ég er komin í “fjall á viku” á þriðjudagskvöldum með vini mínum, vantar félagsskap fyrir hina 6 dagana svo endilega hafið samband við mig ef ykkur langar í fjallgöngu/hellaskoðun og fleira skemmtilegt.